Innlent

Hestaflutningabílar og vörubíll út af á Holtavörðuheiði

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Úr vefmyndavél Vegagerðarinnar á Holtavörðuheiði um fimmleytið í dag. Hálka er á veginum og nokkuð hvasst.
Úr vefmyndavél Vegagerðarinnar á Holtavörðuheiði um fimmleytið í dag. Hálka er á veginum og nokkuð hvasst.

Veginum um Holtavörðuheiði var lokað um klukkan hálffjögur í dag vegna umferðaróhapps.

Að því er greint er frá á vef RÚV höfðu nokkrir bílar farið út af veginum. Mikil hálka er á þessum slóðum og nokkuð hvasst.

Að því er fram kemur í frétt RÚV fóru hestaflutningabílar og vörubíll út af veginum í hálkunni. Fóru starfsmenn Vegagerðarinnar á vettvang til að aðstoða ökumennina sem voru í vanda á heiðinni.

Þá hefur þjóðvegi 1 á milli Hnappavalla og Hala í Suðursveit verið lokað vegna óveðurs. Ófært er síðan um þjóðveg 1 á Mývatnsöræfum vegna stórhríðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×