Topplið Fram og Vals drógust saman og ÍBV mætir Haukum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. febrúar 2020 12:30 Frá leik Vals og Fram fyrr í vetur. Karen Knútsdóttir brýst hér í gegnum vörn Vals. Vísir/Bára
Íslands- og bikarmeistarar Vals mæta toppliði Fram í undanúrslitum Coca Cola bikars kvenna í handbolta en dregið var í undanúrslitaleikina í Höllinni í Smárabíói í hádeginu. Stórleikurinn karlamegin er leikur ÍBV og Hauka en þessi félög hafa spilað marga risaleiki á síðustu árum. Afturelding mætir Stjörnunni í hinum leiknum hjá körlunum. Haukar eru á toppnum í Olís deild karla en hafa ekki byrjað vel eftir áramót. Eyjamenn eru sex sætum neðar en þeir hafa bitið frá sér að undanförnu. Ekkert liðanna í pottinum karlamegin komust svona langt í fyrra en Eyjamenn unnu bikarinn fyrir tveimur árum eftir sigur Haukum í undanúrslitum og Fram í úrslitaleiknum. ÍBV og Haukar mætast því aftur í undanúrslitunum í ár. Fram og Valur hafa verið í nokkrum sérflokki í Olís deild kvenna í vetur og þau mætast í undanúrslitunum í ár. KA/Þór og Haukar spila í fyrri undanúrslitaleiknum. Valur vann þriggja marka sigur á Fram í bikarúrslitaleiknum í fyrra og Valur vann síðan Fram einnig í lokaúrslitunum um Íslandsmeistaratitilinn. Framliðið hefur aftur á móti þriggja stiga forystu á Val í Olís deildinni í dag. KA/Þór og Haukar eru aftur á móti jöfn að stigum í 5. og 6. sæti deildarinnar.Undanúrslit Coca Cola bikars karla 2019-20: 18.00 ÍBV - Haukar 20.30 Afturelding - StjarnanUndanúrslitaleikirnir í Coca Cola bikar karla fara fram fimmtudaginn 5. mars og úrslitaleikurinn er síðan laugardaginn 7. mars.Undanúrslit Coca Cola bikars kvenna 2019-20: 18.00 KA/Þór - Haukar 20.30 Valur - FramUndanúrslitaleikirnir í Coca Cola bikar kvenna fara fram miðvikudaginn 4. mars og úrslitaleikurinn er síðan laugardaginn 7. mars.
Olís-deild karla Olís-deild kvenna Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Formúla 1 Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Mikil óvissa um þátttöku Alberts í mikilvægum landsleikjum Fótbolti „Áttum mun meira skilið úr þessum leik“ Fótbolti Fleiri fréttir Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sjá meira