Brimborg og Askja innkalla bifreiðar Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 20. ágúst 2020 07:01 Ford Kuga PHEV. Varað er við því að hlaða bílana áður en loftstýringu hefur verið bætt við.
Bílaumboðin Askja og Brimborg hafa þurft að innkalla bíla í gær og fyrradag. Askja tilkynnt um innköllun á 20 Mercedens-Benz X-Class pallbílum. Brimborg hefur tilkynnt um innköllun á 22 Ford Kuga PHEV bíla. Ford Kuga PHEV Ástæða innköllunar er að rannsóknir Ford hafa leitt í ljós að við afar sjaldgæfar aðstæður getur drifrafhlaða bílsins þurft að losa sig við heitar lofttegundir til þess að minnka þrýsting og hita. Hitinn getur haft áhrif á aðra íhluti og í versta falli valdið eldhættu. Til að fyrirbyggja þetta hefur Ford ákveðið að bæta við loftstýringu. Áður en loftstýringu hefur verið bætt við er rétt að ítreka að bílarnir séu ekki settir í hleðslu og einungis aka bílnum í þeirri stillingu sem bíllinn fer í við ræsingu „AUTO EV“. Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt bréfleiðis um innköllunina. Mercedes Benz X-Class er lýst sem tegund lúxuspallbíla.Wikipedia Mercedes-Benz X-Class Ástæða innköllunar er að hámarksþyngd ofan á þaki bifreiðarinnar er ekki rétt skv. handbók í bifreiðinni. Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina símleiðis samkvæmt tilkynningu frá Öskju. Hægt er að fletta upp hvort útistandandi innköllun sé á bíl, eftir skráningarnúmeri eða vin-númeri á heimasíðu Neytendastofu.
Neytendur Innköllun Mest lesið Þorleifur Kamban er látinn Innlent Efnaðir Ítalir sagðir hafa myrt fólk í Sarajevo sér til ánægju Erlent Leiðbeinandinn ákærður fyrir að nauðga einu barni tvisvar Innlent Áralangur misskilningur um losunarmarkmið Íslands Innlent Á leið í frí en hvergi nærri hættur Innlent Sagði Trump hafa varið klukkustundum með fórnarlambi sínu Erlent Borgin hafi gert úrbætur en sólin sé aðalvandamálið Innlent Safnar undirskriftum til varnar síðdegisbirtunni Innlent Framsókn vill endurskoða tilmæli borgarinnar um barnaafmæli Innlent Óskar eftir fundi með Apple Innlent