Dusty saltaði HaFiÐ Bjarni Bjarnason skrifar 22. september 2020 22:00
Sjöunda umferð Vodafonedeildarinnar í CS:GO fór fram í kvöld. Millileikur kvöldsins var viðureign Dusty og Hafsins. En hafa þessir erkiféndur eldað grátt silfur undanfarin tímabil með hnífjöfnum viðureignum. Hafið hóf leikinn í vörn (Counter-Terrorist) í kortinu Nuke á heimavelli Dusty. Fyrstu lotur leiksins voru hnífjafnar þar sem th0rsteinnf (Þorsteinn Friðfinnsson) leikmaður Dusty mætti snemma til leiks. En eftir að hafa tapað fyrstu lotu fyrir snöggri sókn Dusty svaraði HaFiÐ fyrir sig stálu þeir annari lotu og vopnum frá Dusty. Leikmenn Dusty misstu þó ekki taktinn. Við tók mögulega fagmannlegasta spilamennska þeirra í deildinni hingað til. Lotu eftir lotu spiluðu þeir vörn Hafsins í sundur með fullkomlega framkvæmdum leikfléttum. Vörn Hafsins lak í fyrri hálf leik en Dusty átti hann skuldlaust. Staðan í hálf leik Dusty 10 - 5 HaFiÐ Dusty stóð ekki af sér ölduganginn í Hafinu í fyrstu lotu síðar hálfleiks. En þrátt fyrir mögur kaup í annari lotu tókst þeim að stela henni frá Hafinu. Í framhald að því skellti Dusty í lás. Leikmaður Dusty th0rsteinnf (Þorsteinn Friðfinnsson) átti stórleik á móti erfiðum andstæðingum sem þó áttu sér ekki viðreisnar von í þessum leik. Lokastaðan Dusty 16 - 5 HaFiÐ.
Dusty Vodafone-deildin Mest lesið Bláir í rauðu hafi: „Eins og við værum boðflennur í einkapartýi“ Handbolti Segir Dag hafa beðist afsökunar Handbolti Allir sérfræðingar TV 2 með Gísla í úrvalsliðinu Handbolti Gidsel gefur lítið fyrir tuð Þjóðverja Handbolti Svaf yfir sig og missti af rútunni Handbolti „Mér var nákvæmlega sama um þetta allt saman“ Handbolti Danir láta Gísla heyra það eftir gagnrýni: „Haltu kjafti Ísland“ Handbolti Efins um Pargo-skiptin: „Held að þetta sé ekki rétt hjá þeim“ Körfubolti Utan vallar: Af hverju töpuðu hetjurnar okkar gegn Dönum? Sport Aldrei séð Dag svona reiðan Handbolti