Klara Elias eða Klara Ósk Elíasdóttir gaf á miðnætti út sína aðra smáskífu sem ber nafnið Champagne. Fyrsta smáskífan hennar Paralyzed kom út í síðasta mánuði við góðar undirtektir eins og fjallað var um hér á Vísi. Bæði lögin er af væntanlegri plötu söngkonunnar sem kemur út á næsta ári.
Lagið Champagne samdi Klara með Ölmu Guðmundsdóttur og danska pródúsentinum David „Dehiro“ Morup sem sá einnig um að útsetja.
„Þetta er uppáhaldslagið mitt af plötunni,“ segir Klara um nýja lagið.
„Lagið var samið tveimur dögum eftir erfiðustu sambandsslit sem ég hef farið í gegnum. Ég áttaði mig á því í miðju partý, með glas á lofti og tárin í augunum að skála við vini mína að þetta væri búið og ég væri loksins tilbúin til að hætta pína mig í að reyna láta eitthvað ónýtt virka. Þetta er persónulegasta og einlægasta lag sem ég hef samið og er svo stolt og glöð að geta gefið það frá mér og lokað þessum kafla á þennan hátt fallega hátt.“

Hún segir að Champagne sé ljúfsár ballaða sem skálar fyrir því að finna kjark til að ganga í burtu frá því sem er ekki rétt fyrir mann, jafnvel þegar það er „f***ing sárt.“
Hægt er að hlusta á lagið Champagne á Spotify og öllum helstu efnisveitum og í spilaranum hér fyrir neðan.