Nei, stórfé! Hér dugar ei minna! Ólafur Ísleifsson skrifar 22. nóvember 2020 11:00 Kórónuveiran hefur slegið atvinnu- og efnahagslíf hér sem annars staðar bylmingshöggi. Nú þegar grillir í ljós við endann á göngunum þarf stefnu um endurreisn þjóðarbúsins til að uppræta atvinnuleysi og efla hagsæld landsmanna. Til að efla atvinnulífið og eyða böli atvinnuleysis blasir við að ráðast í fjárfestingarátak til að bæta innviði í landinu. Átt er við vegakerfið, flugvelli, hafnir, brýr og fleiri slík vinnuaflsfrek verkefni. Hér eru uppi háar fjárhæðir til arðsamra verkefna. Fyrirsögn greinarinnar er sótt í hin alkunnu ummæli stórskáldsins og hins stórhuga athafnamanns Einars Benediktssonar í Aldamótaljóði sínu. Aðkallandi verkefni Fjölmörg verkefni hafa setið á hakanum um langt skeið þótt ýmislegt gott hafi verið gert. Ekki bætti hrunið úr skák og margvíslegar nýframkvæmdir og viðhald hafa mátt bíða. Ferðamannastraumurinn sýndi að vegakerfið stenst ekki kröfur um burðargetu og öryggi. Treysta þarf flugvelli, vegi, hafnir. Fráveitu- og sorpmál eru víða í ólestri og ógna umhverfi og lýðheilsu. Stór verkefni bíða í orkuvinnslu og orkuflutningum. Hitaveitur og vatnsveitur þarfnast víða endurbóta. Sama á við um fasteignir af ýmsu tagi, skóla og sjúkrahús, dvalar- og hjúkrunarheimili fyrir aldraða. Greining Samtaka iðnaðarins Samtök iðnaðarins (SI) sendu í október 2017 frá sér metnaðarfullt rit undir yfirskriftinni Íslenskir innviðir - Ástand og framtíðarhorfur. Er fjallað um innviði í flugvöllum, vegum, höfnum, fráveitum, hitaveitum, vatnsveitum, úrgangsmálum, orkuvinnslu og orkuflutningum ásamt fasteignum ríkis og sveitarfélaga, meðal annars skóla og sjúkrahús. Með fjárfestingum í innviðum telja samtökin að sé fjárfest í lífsgæðum þjóðarinnar, samkeppnishæfni atvinnulífsins og hagvexti framtíðar. Mikilvægir innviðir Í skýrslunni er svarað áhugaverðri spurningu: Hvert væri kaupverð eða kostnaðarverð sambærilegra innviða með sömu framleiðslu- og þjónustugetu? Svarið er um 3.500 milljarðar króna. Skipting ofangreindrar fjárhæðar er í grófum dráttum: Orkuvinnsla (850–900 milljarðar króna), vegagerð (870–920), fasteignir ríkis og sveitarfélaga (440), orkuflutningar (320) og flugvellir (240–280). Lægsta fjárhæðin er í úrgangsmálum (35–40). Hvað þarf til? Ástand innviða er að almennt talin viðunandi en ekki góð. Búast megi við umtalsverðu viðhaldi til þess að halda uppi starfsemi þessara innviða. Best standa hitaveitur og orkuvinnsla og kalli ekki nema á eðlilegt viðhald. Verst er ástand vega og fráveitna. Aðrir innviðir liggja þarna á milli. Þá er næst leitað svara við spurningunni hvað þurfi til að mannvirki komist í gott ástand og ekki þurfi nema eðlilegt viðhald til að halda stöðu þess óbreyttri. Þessi viðhaldsþörf er áætluð um 370 milljarðar króna eða um 11% af verðmætamatinu að ofan. Þar höfum við það. Nær fjögur hundruð milljarða þarf að dómi þeirra sem best þekkja í atvinnulífinu til að lyfta landinu í viðunandi ástand í þessum efnum. Brettum upp ermar! Viðhaldi innviða hefur að dómi SI verið verulega ábótavant í vegagerð, fasteignum ríkisins, fráveitum og orkuflutningum. Víða um land eru hættulegir vegarkaflar og á hringveginum eru enn hátt í 40 einbreiðar brýr. Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu eru kapítuli út af fyrir sig. Þar þarf að styrkja stofnbrautir, koma upp mislægum gatnamótum, beita ljósastýringu og leggja Sundabraut. Umtalsverð raforka nýtist ekki sökum þess að flutningskerfi raforku er ófullkomið. Þetta kallar á fjárfestingar í uppbyggingu meginflutningskerfis til að tryggja nægt framboð raforku um land allt. Skortur er á dvalar- og hjúkrunarheimilum. Uppræta þarf myglu í fjölmörgum opinberum byggingum. Hvaðan kemur fé til framkvæmda? Í ljósi stöðu efnahagsmála gefst nú tækifæri til bæta innviði landsins, bæta lífskjör og eyða atvinnuleysi. Framkvæmdir af þessu tagi duga ekki aðeins í bráð heldur leggja grunn að hagvexti á komandi tímum. Umfang verkefnisins nemur um 15 % af landsframleiðslu 2017 að dómi SI. Hið opinbera getur ekki eitt og sér staðið að framkvæmdum upp á hundruð milljarða á næstu árum. Innlendir jafnt sem erlendir fjárfestar eru áhugasamir um innviðauppbyggingu hér á landi og hér hefur byggst upp þekking á rekstri slíkra verkefna. Einkaaðilar verða að koma að uppbyggingu innviða. Landinu lyft Til að fjármagna framkvæmdir af þessu tagi má sjá fyrir sér að ríkið stofni félag sem nýtir þekkingu og hugvit. Slíkt félag gæti leitað til almennings og boðið lífeyrissjóðum áhugaverða fjárfestingarkosti sem féllu vel að eignasöfnum þeirra. Með þessu væri komið til móts við nauðsyn sjóðanna á að ávaxta ráðstöfunarfé til langs tíma til hagsbóta fyrir sjóðfélaga á efri árum. Verkefnin eru arðsöm og geta staðið undir vænlegri ávöxtun til þeirra sem leggja til fjármagn. Landinu yrði lyft í margvíslegu tilliti. Höfundur er þingmaður Miðflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Ísleifsson Miðflokkurinn Skoðun: Kosningar 2021 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar