Playstation 5-leikjatölvan kom út á dögunum eftir að áhugamenn og aðdáendur biðu þolinmóðir um margra mánaða skeið. Margir höfðu lagt inn forpöntun til þess að koma höndum yfir gripinn. Tölvan var framleidd í heldur takmörkuðu upplagi í fyrstu lotu, og internetbraskarar virðast hafa komist yfir mikinn fjölda tækja, með það fyrir augum að selja á mun hærra verði en Sony.
Samkvæmt frétt Business Insider um málið komst einn hópur braskara yfir um 3.500 tæki. Þúsund þeirra voru forpantaðar beint frá Sony, en aðrar komust þeir yfir í gegn um forsölur hjá þriðja aðila.
Hópurinn, sem kallar sig CrepChiefNotify, samanstendur af 12 starfsmönnum og býður upp á áskrift að þjónustu sinni gegn gjaldi. Gegn greiðslu slíks gjalds fá viðskiptavinir ýmis tæki til að auðvelda kaup á ýmiskonar vörum sem framleiddar eru í takmörkuðu upplagi, svo sem tískufatnaði, strigaskóm og leikjatölvum á borð við Playstation 5. Gjaldið er frá 30 sterlingspundum upp í 400, það er á bilinu frá um 5.500 krónum upp í tæplega 73.000 krónur á mánuði.
Hópurinn notaðist við forrit sem gera fólki kleift að komast fram fyrir í starfrænum röðum og komast fram hjá biðtíma milli pantana og tryggði sér þannig þennan fjölda leikjatölva, sem var ætlaður þeim þúsundum meðlima sem greiða áskriftargjald.
Raunar greinir Business Insider frá því að einhverjir áskrifenda hafi tryggt sér á annan tug leikjatölva, sem þeir hyggist svo selja dýrum dómum til þeirra sem ekki voru svo heppnir að ná að næla sér í eintak.