Óvissa er sögð ríkja um afdrif fleiri en þrjú hundruð dóma Landsréttar sem fjórir dómarar við réttinn hafa kveðið upp, staðfesti yfirdeild mannréttindadómstólsins dóm hans frá því í fyrra, sem var á þá leið að skipun dómara við Landsrétt hafi falið í sér brot gegn 6. grein Mannréttindasáttmála Evrópu þar sem kveðið er á um rétt einstaklinga til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi.
Sigríður Á. Andersen, þáverandi dómsmálaráðherra, hafði þá skipað fjóra dómara við réttinn sem ekki voru á lista yfir þá sem hæfnisnefnd hafði metið hæfasta. Alþingi samþykkti tillögu Sigríðar um skipan dómaranna í júní árið 2017. Við afgreiðslu málsins á Alþingi voru greidd atkvæði um listann í heild, listann yfir alla þá dómara sem Sigríður Andersen lagði til að yrðu skipaðir við réttinn, en ekki um hvern og einn fyrir sig. Dómur Mannréttindadómstólsins leiddi á endanum til afsagnar Sigríðar sem ráðherra.
Dómararnir fjórir tóku þátt í störfum nýja dómstigsins frá skipun þeirra 1. janúar árið 2018 og þar til dómur Mannréttindadómstólsins féll 13. mars í fyrra. Íslensk stjórnvöld óskuðu í framhaldi af þeim dómi, í maí 2019, eftir því að málið yrði tekið til endurskoðunar á vettvangi yfirdeildarinnar á þeim forsendum að málið teldist óvenjulegt og vekti upp veigamiklar spurningar um túlkun og framkvæmd mannréttindasáttmála Evrópu. Féllst dómurinn á þá beiðni í september í fyrra og fór málflutningur fram fyrir yfirdeildinni í febrúar á þessu ári.
Fyrir fram var gert ráð fyrir að niðurstaða yfirdeildar MDE myndi liggja fyrir tólf til átján mánuðum eftir málflutning. Sá dagur rennur upp á morgun, á fullveldisdaginn 1. desember, eða aðeins um tíu mánuðum eftir að málið var flutt í yfirdeild.