Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra og Embætti landlæknis bjuggu til kerfið sem kynnt hefur verið á Covid.is. Kerfið byggir á litum líkt og veðurviðvörunarkerfi Veðurstofu Íslands.
Litirnir eru fjórir; grár (nýja normið), gulur (vertu á verði), appelsínugulur (aukin hætta) og rauður (alvarlegt ástand).
Grátt ástand - sóttvarnir í fyrirrúmi.
Óveruleg áhrif á daglegt líf fólks. Almenningur þarf að sinna persónulegum sóttvörnum og fara með gát. Grár er lægsta hættustigið og áhrifin eru einna helst á ferðir fólks milli landa, stærri samkomur og daglegt hreinlæti. Við þessar aðstæður mun ákveðin starfsemi þurfa að búa við skerðingar til lengri tíma. Grár er nýja normið okkar á meðan heimsfaraldurinn stendur yfir.

Gult ástand - hertar sóttvarnir.
Nokkur eða staðbundin áhrif á daglegt líf fólks, sem og takmarkanir á þjónustu og samkomum. Aukin hætta er á sýkingum, en þó þannig að sóttvarnaaðgerðir eru sértækar og er beint að þeim stöðum og þjónustu þar sem sýkingarhættan er mest. Fólk í áhættuhópum þarf að sýna aukna aðgát sem og þjónustuaðilar viðkvæmra hópa.

Appelsínugult ástand - mikil fjöldatakmörkun.
Miðlungs eða miklar líkur á að faraldurinn hafi veruleg áhrif á samfélagið og daglegar athafnir fólks. Skerðing á þjónustu og samkomum er töluverð, sýkingarhætta hefur aukist og fólk beðið að halda sig innan síns nána tengslahóps og fara sérstaklega varlega í kringum einstaklinga í viðkvæmum hópum. Hætta er á að heilbrigðiskerfið sé undir miklu álagi.

Rautt ástand - mikil fjöldatakmörkun.
Miklar líkur á mjög miklum samfélagslegum áhrifum. Strangar og íþyngjandi sóttvarnaaðgerðir á samkomum og jafnvel ferðum fólks innanlands. Mikil hætta á smitum og fólk beðið að halda sig innan síns nánasta tengslahóps og fara sérstaklega varlega í þjónustu og umgengni við viðkvæma hópa. Heilbrigðiskerfið er við þolmörk og álag á viðbragðsaðila mikið.

Sem stendur er rautt ástand á Íslandi. Í rauðu ástandi miðast fjöldatakmarkanir við 5-20 manns, fyrirvari breytinga er þrír dagar, samvera er aðeins með nánasta fólki og tveggja metra fjarlægðatakmörk í gildi.

Þá má sjá viðmið fyrir skólastarf miðað við hvert ástand.
Litakerfi fyrir íþróttir
Á Covid.is í morgun var auk þess birt tafla yfir íþróttagreinar sem skilgreindar eru í þrjá flokka. Samkvæmt upplýsingum frá almannavörnum var taflan birt fyrir mistök en enn er verið að leggja lokahönd á að flokka íþróttagreinar eftir smithættu.
Fram kom í töflunni, sem nú hefur verið fjarlægð, að í flokknum lág áhætta voru íþróttagreinar eins og badminton, borðtennis, dans, áhaldafimleikar, frjálsar íþróttir, golf, hestaíþróttir, hjólreiðar og fleira.
Í flokknum meðaláhættu voru blak, hópfimleikar, knattspyrnu utan dyra, skylmingar og krulla.
Í flokknum meiri áhætta voru greinar á borð við glímu, bandý, handbolta, hnefaleika, íshokkí, júdó, knattspyrna inni, körfubolti, skvass og fleiri.
Taflan hefur verið fjarlægð af vefnum Covid.is þar sem ekki var um lokaútgáfu að ræða. Enn er verið að leggja lokahönd á litakerfið fyrir íþróttir.