Ríflegur kaupauki til starfsfólks ef arðsemi er hærri en samkeppnisaðila Sylvía Hall skrifar 16. desember 2020 21:42 Benedikt Gíslason er bankastjóri Arion banka. Arion banki Náist markmið nýs kaupaukakerfis Arion banka mun starfsfólks bankans geta fengið allt að tíu prósent af föstum árslaunum sínum á næsta ári í kaupauka. Æðstu stjórnendur bankans geta fengið allt að 25 prósent kaupaukagreiðslu með sömu skilyrðum, en þó í formi hlutabréfa í bankanum.
Kjarninn greinir frá þessu á vef sínum í dag, en þar kemur meðal annars fram að umrædd hlutabréf sem stjórnendur gætu fengið í sinn hlut yrðu ekki laus til ráðstöfunar fyrr en þremur árum eftir kaupaukagreiðsluna. Hvort kaupaukakerfið nái árangri kemur í ljós þegar ársreikningur bankans fyrir næsta ár liggur fyrir. Stefnt er að því með kaupaukakerfinu að arðsemi bankans verði hærri en vegið meðaltal helstu keppinauta, það er Íslandsbanka, Kviku og Landsbankans. Gangi það ekki eftir verður kaupaukinn ekki greiddur út samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu Arion til hlutabréfamarkaða sem hann er skráður á. Stjórnendur gætu fengið milljóna kaupauka Ljóst er að gangi þetta eftir munu stjórnendur bankans eiga von á dágóðum kaupauka. Mánaðarlaun Benedikts Gíslasonar bankastjóra voru 4,7 milljónir á síðasta ári og eru því árslaun hans 56,4 milljónir. Kaupaukagreiðslan gæti þá numið rúmlega fjórtán milljón krónum ef árslaun síðasta árs eru lögð til grundvallar. Stefán Pétursson, fjármálastjóri bankans, er með um fjórar milljónir á mánuði og því 48 milljónir í árslaun. Kaupauki til hans myndi því nema um 12 milljónum ef tekið er mið af þeim launum. Samkvæmt þeim launum sem Ásgeir H. Reykfjörð Gylfason fékk greidd á síðasta ári á hann einnig von á háum kaupauka, en hann var ráðinn aðstoðarbankastjóri á síðasta ári og hóf störf í september. Hann fékk greiddar 22,5 milljónir fyrir sín störf til áramóta og eru því mánaðarlaun hans að meðaltali 5,6 milljónir.
Íslenskir bankar Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira