Nú stendur fyrir dyrum að hefja framleiðslu á Purosangue, jepplingnum sem skal afhendast fyrstu kaupendum í ársbyrjun 2022 og ganga fyrir jarðefnaeldsneyti og vera tvinnbíll. Honum verður fylgt eftir með tveimur raf-jepplingum, sem innbyrgðis ganga undir nöfnunum F244 og F245. Þeir munu nota sama grunn og Purosangue.
Biðin eftir F244 og F245 er þó líklega nokkur. Sá fyrrnefndi er ekki vætanlegur á markað fyrr en árið 2025 og sá síðari árið eftir, 2026. Samkvæmt fréttum frá CAR magazine. Meira er ekki vitað um bílana að svo stöddu. Engar myndir eru til eða upplýsingar um frammistöðu.
Þegar Ferrari hefur framleiðslu á Purosangue verða fáir framleiðendur eftir sem ekki framleiða jepplinga (e. SUV). Það eru einungis McLaren, Bugatti og Koenigsegg sem framleiða ekki eða hafa ekki uppi áform um slíkt. Pagani hefur á teikniborðinu jeppling sem væntanlega verður kominn í framleiðslu eftir árið 2025.