Erlent

Þung­málmar í drykkjar­vatni á Sval­barða vegna þiðnunar

Kjartan Kjartansson skrifar
Frá Longyearbyen á Svalbarða þar sem á þriðja þúsund manns búa.
Frá Longyearbyen á Svalbarða þar sem á þriðja þúsund manns búa. Vísir/EPA

Þiðnun sífrera vegna hnattrænnar hlýnunar er talin orsök þungmálma í drykkjarvatni á Svalbarða. Íbúum þar hefur verið ráðlagt að drekka ekki kranavatn vegna mengunarinnar.

Fyrst var íbúum í Longyearbyen á Svalbarða ráðið frá því að drekka vatn úr krana í september í fyrra þegar styrkur mangans í því mældist tuttugu og fimmfalt hærri en lýðheilsuviðmið.

Á endanum dró úr manganmenguninni en fyrr á þessu ári greindist súlfat og nikkel í vatninu. Viðvörunin er því enn í gild, að því er segir í frétt The Guardian.

Kranavatnið í bænum kemur úr Isdammen, stöðuvatni í grenndinni. Sérfræðingar telja að þungmálmar komist í vatnið úr berggrunni vegna þiðnunar sífrera. 

Berggrunnurinn er úr leirsteini sem inniheldur járnkís, sem gengur stundum undir nafninu glópagull. Þegar steinefnið kemst í snertingu við vatn og súrefni myndast sýra sem leysir þungmálma út í stöðuvatnið.

Hnattræn hlýnun er mun hraðari á norðurslóðum en annars staðar á jörðinni. Þannig hefur meðalhiti að hausti hækkað um allt að fjórar gráður á áratug á Svalbarða.

Brugðist hefur verið við ástandinu með því að koma upp vatnsgeymi með hreinsuðu vatni sem er ókeypis fyrir íbúa. Bæjarstjórinn segir að mögulega þurfi að finnum bænum nýtt vatnsból. Einnig kemur til greina að setja upp ný hreinsunarkerfi fyrir vatnið úr Isdammen og að hafa afsöltunarbúnað til þess að vinna drykkjarvatn úr sjó til vara.


Tengdar fréttir

Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu

Norðmenn, Bretar og Bandaríkjamenn stöðvuðu Rússa við æfingar á nýju leynivopni sem hannað er til að skera á sæstrengi nærri Svalbarða í vor. Vopn þetta er borið af kafbátum og á að geta skorið á sæstrengi á gífurlegu dýpi, án þess að skilja eftir ummerki um hver hefði verið þar að verki.

Kyrr­setja grun­sam­legt rúss­neskt skip á Sval­barða

Rússnesk stjórnvöld saka Norðmenn um „sjóræningjastarfsemi“ eftir að rússneskt skip var kyrrsett á Svalbarða. Skipið var kyrrsett að kröfu úkraínsks orkufyrirtækis sem á inni skaðabætur hjá stjórnvöldum í Kreml.

Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum

Vetrarhiti á norðurskautinu gæti verið hátt í þremur gráðum yfir meðaltali síðustu þriggja áratuga næstu árin. Einnig eru taldar líkur á að óvenju votviðrasamt verði á norðurslóðum næstu fimm vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×