Alþjóðlegi vöffludagurinn er á morgun 25. mars. Af því tilefni blæs Vilkó til gjafaleiks á facebook. Til mikils er að vinna en Vilkó gefur veglegan pakka með vöfflum, pönnukökum, vöfflujárni, rjómasprautu, sultum og fleiru. Einnig aukavinningar í boði.
Vöfflurnar frá Vilkó hafa fyrir löngu sannað ágæti sitt á kaffiborðum landsmanna.

„Vilkó vöfflurnar eru mest selda varan okkar. Við framleiðum vöfflurnar hér hjá okkur, úr íslensku hráefni og uppskriftin er aldagömul leyniuppskrift sem við höfum ekki breytt. Viðskiptavinir okkar geta gengið að því vísu að við förum ekkert út af sporinu og vöfflurnar verða alltaf eins,“ segir Gunnar Tryggvi Halldórsson, framleiðslustjóri Vilkó.

Vilkó er fimmtán manna vinnustaður, staðsettur á Blönduósi. Framleiðslan er fjölbreytt, meðal annars bökunarvörur, súpur og krydd. „Við eigum þrjú stór vörumerki, Vilkó, Flóra og Prima og framleiðum daglega undir þeim merkjum fjölbreytt vöruúrval. Þar má nefna sultur, olíur og bökunarvörur, sem er tilvalið að eiga nóg af í skápunum núna, og þá eru Prima kryddin mest seldur krydd á Íslandi,“ segir Gunnar.
Egg og beikon vinsælt vöffluálegg
Gunnar segir Íslendinga nokkuð hugmyndaríkir þegar kemur að áleggi á vöfflurnar. Þeir geri ýmsar tilraunir þó sulta og rjómi standi alltaf fyrir sínu.

„Fólk gerir allskonar tilraunir og sendir okkur stundum myndir. Til dæmis fengum við mynd þar sem einn var að grilla vöfflur,“ segir Gunnar. „Vöfflurnar frá okkur hafa teygt sig inn á vinnustaðamenninguna og mörg fyrirtæki bjóða upp á vöfflukaffi á föstudögum eða pönnukökur með kaffinu.

Hollustunni er vel hægt að stjórna með álegginu en í vöfflunum sjálfum er tiltölulega lítill sykur eða aukaefni. Fólk setur ýmiskonar sallöt á vöfflurnar og jafnvel egg og beikon en vöfflurnar eru orðnar vinsælar í „bröns.“ Þá eru Amerískar pönnukökur ný vara hjá okkur og tilvaldar í „brönsinn“ hvort sem er heima eða á vinnustaðnum. Amerísku pönnukökurnar þróast hjá okkur út frá vöfflunum og falla sérstaklega vel í kramið hjá yngri kynslóðinni, meðan eldri kynslóðin er meira fyrir vöfflur og rjóma.“
Nánar má kynna sér vöruúrval Vilkó á Vilko.is
Þessi kynning er unnin í samstarfi við Vilkó.