Innlent

Mikil­vægasta verk­efnið að verja af­komu fólks

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir að byggja þurfi upp alla almannaþjónustu eftir „áratug af niðurskurði og aðhaldsaðgerðum.“
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir að byggja þurfi upp alla almannaþjónustu eftir „áratug af niðurskurði og aðhaldsaðgerðum.“ Vísir/Vilhelm

„Aukin framlög og fjárfesting í heilbrigðisþjónustu er ekki eingöngu nauðsynleg á næstunni heldur til framtíðar,“ skrifa Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, í ávarpi í tilefni af Verkalýðsdeginum. Hún segir nauðsynlegt að undið sé ofan af undirfjármögnun síðastliðins áratugar til að tryggja að þjónustan standi undir kröfum sem gerðar eru til hennar og tryggja heilbrigði þess starfsfólks sem starfar við hana.

Hún segir ekki aðeins þurfa að byggja upp heilbrigðisþjónustu heldur alla almannaþjónustu eftir „áratug af niðurskurði og aðhaldsaðgerðum.“ Það þurfi nýja nálgun á opinbera þjónustu svo hún geti staðið undir kröfum sem fylgi faraldrinum og til framtíðar.

Hún einblínir þó ekki aðeins á það sem betur mætti fara heldur fagnar hún nýgerðum kjarasamningum þar sem meðal annars var samið um styttingu vinnuviku um allt að hálfan dag á viku. „Við hjá BSRB erum stolt af því að hafa dregið vagninn í þessu mikilvæga verkefni.“

„En verkefnin eru auðvitað fleiri,“ skrifar hún. „Í tengslum við kjarasamninga aðildarfélaga BSRB lýsir ríkisstjórnin því yfir að hún muni vinna markvisst að því að leiðrétta kerfisbundið vanmat á störfum þar sem konur eru í meirihluta. Ríkisstjórnin mun einnig setja af stað vinnu að heildarendurskoðun á opinberum stuðningskerfum við barnafjölskyldur líkt og í barnabótakerfinu.“

Sjá einnig: Lög­reglu­menn fara í raf­ræna kröfu­göngu

Hún bendir á að þó svo að kjarasamningar flestra aðildarfélaga BSRB hafi verið undirritaðir og samþykktir í atkvæðagreiðslum sé einn fjölmennasti hópur innan félagsins samningslaus en það eru lögreglumenn. „Lögreglumenn, félagar okkar sem starfa í framlínunni nú sem endranær, hafa verið kjarasamningslausir í eitt ár og einn mánuð. Þetta er með öllu óásættanlegt og við krefjumst þess að þeir fái kjarasamninga strax!“

Sonja segir eitt mikilvægasta verkefnið nú að verja afkomu fólks og grípa til markvissra aðgerða með jafnrétti að leiðarljósi. Verja þurfi störfin, tryggja að hópar í viðkvæmri stöðu geti sinnt grunnþörfum sínum, gæta að afkomu fólks á atvinnuleysisbótum og tryggja afkomu fólks sem ekki getur sinnt vinnu vegna undirliggjandi sjúkdóma og umönnunar barnar vegna takmarka á skólastarfi.

„Leiðin upp á við krefst opinberra framlaga og fjárfestinga sem byggja á sanngirni. Skapa þarf störf og fjárfesta í menntun til að tryggja færni í störfum á breyttum vinnumarkaði. Þá þarf að skapa tækifæri með því að efla nýsköpun og rannsóknir,“ skrifar hún. „Það mun skapa störf á fjölbreyttum sviðum og leggja grunn að verðmætasköpun til framtíðar. Sókn í húsnæðismálum til að tryggja húsnæðisöryggi og grænar lausnir stuðla enn fremur að félagslegum stöðugleika.“

„Samfélagslegar lausnir eru lykillinn að því að við komumst sem best út úr óvissunni en ekki lausnir sem byggjast á sérhagsmunum.“


Tengdar fréttir

Lög­reglu­menn fara í raf­ræna kröfu­göngu

Lögreglumenn hafa verið án kjarasamnings í ár og sér ekki fyrir endann á viðræðum. Því hefur verið blásið til rafrænnar kröfugöngu en ekki eru aðstæður til að halda kröfugöngu á staðnum líkt og tíðkast hefur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×