Tölfræðin í Eystri Rangá eftir sumarið Karl Lúðvíksson skrifar 11. janúar 2021 08:28 Björn Hlynur með vænan lax úr Eystri Rangá sumarið 2020 Eystri Rangá var aflahæsta veiðiá landsins á síðasta sumri og sló sitt eigið met og gott betur en það.
Eystri Rangá var aflahæsta veiðiá landsins á síðasta sumri og sló sitt eigið met og gott betur en það. Heildarveiðin í ánni var 9070 laxar og það þarf þess vegna ekkert að koma á óvart að veiðileyfin í ánna hafa selst óhugnalega hratt fyrir sumarið 2021. Staðan er þannig að júlí er uppseldur og lítið eftir af leyfum í ágúst og júní. Eitthvað er laust í september. Nú hefur verið tekin saman tölfræði fyrir júní og júlí mánuð og það er áhugavert að sjá hvaða svæði gáfu best og eins að sjá magnið af laxi sem veiddist á sumum svæðum. Sem dæmi um þessa ótrúlegu veiði þá gaf svæði 1 937 laxa í júlí og svæði 3 gaf 782 laxa. Samtals veiddust 3.453 laxar í ánni bara í júlí! Ágúst var síðan ennþá magnaðri en dæmi voru um að suma daga veiddust hátt í 100 laxar BARA á svæði 1 á dag, já á DAG! Aðeins 13% veiddra laxa voru stórlaxar og það er yfirleitt þannig að eftir gott smálaxaár í ánni kemur gott stórlaxaár svo það má reikna með að það verði mikið af vænum löxum sem koma á flugur veiðimanna næsta sumar í Eystri Rangá og það fer víst hver að verða síðastur að tryggja sér daga í ánni. Þú getur skoðað tölfræðina nánar á vef Kolskeggs eða HÉR.
Stangveiði Mest lesið Þar sem 50 punda laxar rífa í flugurnar Veiði Fín veiði í Varmá Veiði Veiðimenn langþreyttir á veðrinu Veiði Ytri Rangá í góðum gír Veiði Lax eða sjóbirtingur? Veiði Prýðileg opnun í Laxá í Dölum Veiði Fín veiði í nettustu á landsins Veiði Affallið í um 500 löxum Veiði Sauðlauksvatn hefur verið að gefa feyknagóða veiði Veiði Nýtt veiðihús klárt fyrir næsta sumar í Brynjudalsá Veiði