„Við vitum ekki hvað við fáum að hafa hann lengi“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 12. janúar 2021 09:28 Vera Kristjánsdóttir segir að fyrir foreldra fatlaðra og langveikra barna geti skipt miklu máli að komast út af heimilinu, til dæmis í vinnu. 15 ára sonur hennar er með taugahrörnunarsjúkdóm. Til þess að geta verið á vinnumarkaði þurfa Vera Kristín Vestmann Kristjánsdóttir og maðurinn hennar að treysta á að vera með skilningsríka yfirmenn. Sem foreldrar langveiks barns geta þau ekki verið í fullu starfi og eru því bæði kennarar í skertu hlutfalli. „Það gengur en við erum svolítið háð skilningi og velvild góðra stjórnenda og sem betur fer höfum við það í dag. En höfum fengið að heyra ýmislegt í gegnum tíðina. Allar rannsóknir sýna hversu mikilvægt það er fyrir fólk að fara út á vinnumarkað og halda í vinnu þó svo að maður eigi líka mikla vinnu þegar heim kemur, að þá skiptir þetta svo gríðarlega miklu máli að komast út af heimilinu og eiga vinnu.“ „Hann er 15 ára í dag og þetta er hrörnunarsjúkdómur svo hann versnar dag hvern og ár hvert þannig að við vitum ekki hvað við fáum að hafa hann lengi en er á meðan er og við þökkum fyrir hvern dag..“ Vera ræddi sína reynslu í viðtali í þættinum Spjallið með Góðvild sem birtist á Vísi í dag. Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Spjallið með Góðvild - Vera Kristín Vestmann Kristjánsdóttir Mikil einangrun Kristinn Logi sonur Veru er með taugahrörnunarsjúkdóm og er öðrum háður varðandi aðstoð með allar daglegar athafnir. Hann þarf súrefni og er með mettunarmæli og fleiri tæki, hann þarf að nota hjólastól og er ómálga svo hann þarf fulla aðstoð. Vera segir að það sé þeim mikilvægt að vera á vinnumarkaði og taka þannig þátt í samfélaginu. Missi fólk tækifærið til að fara út af heimilinu, er heimurinn orðinn svo lítill. „Það er svo rosalega mikil einangrun.“ Vikuleg hjónakvöld Með því að vinna sé hægt að taka þátt, miðla einhverju og efla þannig sjálfan sig í leiðinni. Árið 2009 benti félagsráðgjafi þeim á að skilnaðartíðni foreldra fatlaðra barna sé mjög há. Þau ákváðu því að passa vel upp á að hlúa að sambandinu. „Síðan þá höfum við haldið þriðjudaga heilaga, þriðjudagar eru hjónadagar. Þá fáum við alltaf aðila heim klukkan sex á kvöldin og við förum út af heimilinu.“ Hjónin fara þá eitthvað saman eins og í sund, út að hlaupa, út að borða, í bíó eða annað. Þetta er auðvitað ekki hægt þegar drengurinn er á sjúkrahúsi eða veikur heima. „Við eigum bara okkar tíma þar sem við fáum að vera bara við og ekki mamma og pabbi, í smá stund.“ Átta ára barátta Hjónin eiga ekki rétt á tekjutengdum foreldragreiðslum, vegna þess að drengurinn þeirra var greindur fyrir október árið 2007. „Okkur finnst að öll börn eigi að fá að vera börn og öll börn eiga að njóta sama réttar.“ Þau fóru því með málið áfram og á endanum fyrir dómstóla. Þau fóru í gegnum héraðsdóm, hæstirétt og enduðu í Landsrétti. „Þetta ferli tók átta ár og lauk með tapi.“ Hægt er að hlusta á viðalið í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni. Þar ræðir hún meðal annars dómsmálið, NPA þjónustusamninginn, þjónustu á landsbyggðinni og fleira tengt málefnum fatlaðra og langveikra barna. Þættirnir Spjallið með Góðvild eru sýndir á Vísi á þriðjudögum. Verkefnið er afurð margra ára samstarfs Sigurðar Hólmars Jóhannessonar sem er í stjórn Góðvildar og Ágústu Fanneyjar Snorradóttur kvikmyndagerðarkonu og eiganda Mission Framleiðslu. Þáttastjórnendur eru Sigurður Hólmar Jóhannesson, Þórunn Eva Pálsdóttir og Ásdís Arna Gottskálksdóttir. Þættirnir eru nýr vettvangur til að koma málefnum langveikra og fatlaðra barna á framfæri og auka í leiðinni sýnileika fyrir mikilvæg málefni. Hægt er að hafa samband við Sigurð og Ágústu Fanney vegna þáttanna í gegnum vefsíðuna www.godvild.is eða samfélagsmiðla félagsins. Með því að styrkja Góðvild þá ertu að styðja við langveik og fötluð börn á Íslandi. Styrktarreikningur 0301-26-660117, kennitala 6601172020. Spjallið með Góðvild Heilbrigðismál Vinnumarkaður Tengdar fréttir „Ég veit ekki ennþá hvernig ég komst í gegnum þetta“ Eygló Guðmundsdóttir eignaðist þrjú börn á innan við fimm árum á meðan hún var í námi. Yngsta barnið, Benjamín, greindist nokkurra vikna gamall með krabbamein og lést aðeins 12 ára að aldri. 5. janúar 2021 11:00 Hægt að spara fjármuni með því að gera þetta betur „Þetta er eiginlega góð saga um það hvernig það að hlusta, og samtalið getur leitt af sér,“ segir Willum Þór Þórsson þingmaður Framsóknarflokksins. Hann setti á árinu af stað vinnu og lagði fram þingsályktunartillögu, sem snýr að bættri þjónustu fyrir langveika og fatlaða og þeirra aðstandendur. 29. desember 2020 08:00 „Læknirinn okkar er bráðamóttakan og það er ansi dýr læknir“ „Honum var eins og mörgum í okkar hóp, ekki hugað langt líf, en hefur svo sannarlega afsannað það um langt skeið. Hins vegar höfum við oft dansað á línunni,“ segir Sigríður K. Hrafnkelsdóttir verkefnastjóri hjá Landlæknisembættinu. 22. desember 2020 08:00 Mest lesið „Mjög fallegt“ hús og „fullfrágengin“ lóð Lífið Þeir fátæku borga brúsann Gagnrýni Fyrstur til að skíða niður Everest án súrefnis Lífið „Það sýður miklu frekar upp úr við uppvaskið“ Lífið Elli Egils hélt að Elli Egils væri grín Lífið Selja íbúð í Vesturbænum: „Við eigum of mörg börn til að búa í henni áfram“ Lífið Elli Egils hannaði hátalara fyrir Bang & Olufsen Lífið Auður í Bæjarbíói: Frá slaufun í standandi fagnaðarlæti Gagnrýni Hefur keypt fasteignir fyrir rúman milljarð íslenskra króna á árinu Lífið Ástfangin á ný Lífið Fleiri fréttir Lamaðist og missti sjón en fann styrk í sjálfri sér Víkingur heiðar hlaut gullverðlaun Konunglega fílharmóníufélagsins Fyrstur til að skíða niður Everest án súrefnis „Það sýður miklu frekar upp úr við uppvaskið“ „Mjög fallegt“ hús og „fullfrágengin“ lóð Elli Egils hannaði hátalara fyrir Bang & Olufsen Elli Egils hélt að Elli Egils væri grín Framtíð Ísraela í Eurovision ákveðin í nóvember Fargufan nýjasta æðið á Íslandi Selja íbúð í Vesturbænum: „Við eigum of mörg börn til að búa í henni áfram“ Lýsir raunum einhleypra í Reykjavík: „Tilhugalífið minnir á lélegt bókunarkerfi“ Þetta eru uppáhalds barnabækur ráðherranna Ástfangin á ný Hollywood-stjarna slær sér upp með prins „Er ekki hér til að keppast um fegurð“ Þriðja í heiminn hjá Rihönnu og A$AP Rocky Er ekki eðlilegt að stunda kynlíf á afmælinu? Hefur keypt fasteignir fyrir rúman milljarð íslenskra króna á árinu Minntist bróður síns fyrir fullum sal Leiðir skilja hjá Svala og Jóhönnu Stella og Davíð sjóðheitt nýtt par Elín tendrar eldana fyrir Laufeyju Mun aldrei gleyma augnaráði bílstjórans Óvænt stjörnuskipti í jólasýningu Þjóðleikhússins Unnur Birna verður Elma „Þrisvar sinnum hefur mér verið hótað lífláti“ Bragðgóð graskers- og púrrlaukssúpa með karrý og kókosmjólk Claudia Cardinale er látin O (Hringur) hlaut aðalverðlaun leikinna mynda á Nordisk Panorama Framkvæmdastjóri Olís selur glæsihús í Garðabæ Sjá meira
„Það gengur en við erum svolítið háð skilningi og velvild góðra stjórnenda og sem betur fer höfum við það í dag. En höfum fengið að heyra ýmislegt í gegnum tíðina. Allar rannsóknir sýna hversu mikilvægt það er fyrir fólk að fara út á vinnumarkað og halda í vinnu þó svo að maður eigi líka mikla vinnu þegar heim kemur, að þá skiptir þetta svo gríðarlega miklu máli að komast út af heimilinu og eiga vinnu.“ „Hann er 15 ára í dag og þetta er hrörnunarsjúkdómur svo hann versnar dag hvern og ár hvert þannig að við vitum ekki hvað við fáum að hafa hann lengi en er á meðan er og við þökkum fyrir hvern dag..“ Vera ræddi sína reynslu í viðtali í þættinum Spjallið með Góðvild sem birtist á Vísi í dag. Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Spjallið með Góðvild - Vera Kristín Vestmann Kristjánsdóttir Mikil einangrun Kristinn Logi sonur Veru er með taugahrörnunarsjúkdóm og er öðrum háður varðandi aðstoð með allar daglegar athafnir. Hann þarf súrefni og er með mettunarmæli og fleiri tæki, hann þarf að nota hjólastól og er ómálga svo hann þarf fulla aðstoð. Vera segir að það sé þeim mikilvægt að vera á vinnumarkaði og taka þannig þátt í samfélaginu. Missi fólk tækifærið til að fara út af heimilinu, er heimurinn orðinn svo lítill. „Það er svo rosalega mikil einangrun.“ Vikuleg hjónakvöld Með því að vinna sé hægt að taka þátt, miðla einhverju og efla þannig sjálfan sig í leiðinni. Árið 2009 benti félagsráðgjafi þeim á að skilnaðartíðni foreldra fatlaðra barna sé mjög há. Þau ákváðu því að passa vel upp á að hlúa að sambandinu. „Síðan þá höfum við haldið þriðjudaga heilaga, þriðjudagar eru hjónadagar. Þá fáum við alltaf aðila heim klukkan sex á kvöldin og við förum út af heimilinu.“ Hjónin fara þá eitthvað saman eins og í sund, út að hlaupa, út að borða, í bíó eða annað. Þetta er auðvitað ekki hægt þegar drengurinn er á sjúkrahúsi eða veikur heima. „Við eigum bara okkar tíma þar sem við fáum að vera bara við og ekki mamma og pabbi, í smá stund.“ Átta ára barátta Hjónin eiga ekki rétt á tekjutengdum foreldragreiðslum, vegna þess að drengurinn þeirra var greindur fyrir október árið 2007. „Okkur finnst að öll börn eigi að fá að vera börn og öll börn eiga að njóta sama réttar.“ Þau fóru því með málið áfram og á endanum fyrir dómstóla. Þau fóru í gegnum héraðsdóm, hæstirétt og enduðu í Landsrétti. „Þetta ferli tók átta ár og lauk með tapi.“ Hægt er að hlusta á viðalið í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni. Þar ræðir hún meðal annars dómsmálið, NPA þjónustusamninginn, þjónustu á landsbyggðinni og fleira tengt málefnum fatlaðra og langveikra barna. Þættirnir Spjallið með Góðvild eru sýndir á Vísi á þriðjudögum. Verkefnið er afurð margra ára samstarfs Sigurðar Hólmars Jóhannessonar sem er í stjórn Góðvildar og Ágústu Fanneyjar Snorradóttur kvikmyndagerðarkonu og eiganda Mission Framleiðslu. Þáttastjórnendur eru Sigurður Hólmar Jóhannesson, Þórunn Eva Pálsdóttir og Ásdís Arna Gottskálksdóttir. Þættirnir eru nýr vettvangur til að koma málefnum langveikra og fatlaðra barna á framfæri og auka í leiðinni sýnileika fyrir mikilvæg málefni. Hægt er að hafa samband við Sigurð og Ágústu Fanney vegna þáttanna í gegnum vefsíðuna www.godvild.is eða samfélagsmiðla félagsins. Með því að styrkja Góðvild þá ertu að styðja við langveik og fötluð börn á Íslandi. Styrktarreikningur 0301-26-660117, kennitala 6601172020.
Þættirnir Spjallið með Góðvild eru sýndir á Vísi á þriðjudögum. Verkefnið er afurð margra ára samstarfs Sigurðar Hólmars Jóhannessonar sem er í stjórn Góðvildar og Ágústu Fanneyjar Snorradóttur kvikmyndagerðarkonu og eiganda Mission Framleiðslu. Þáttastjórnendur eru Sigurður Hólmar Jóhannesson, Þórunn Eva Pálsdóttir og Ásdís Arna Gottskálksdóttir. Þættirnir eru nýr vettvangur til að koma málefnum langveikra og fatlaðra barna á framfæri og auka í leiðinni sýnileika fyrir mikilvæg málefni. Hægt er að hafa samband við Sigurð og Ágústu Fanney vegna þáttanna í gegnum vefsíðuna www.godvild.is eða samfélagsmiðla félagsins. Með því að styrkja Góðvild þá ertu að styðja við langveik og fötluð börn á Íslandi. Styrktarreikningur 0301-26-660117, kennitala 6601172020.
Spjallið með Góðvild Heilbrigðismál Vinnumarkaður Tengdar fréttir „Ég veit ekki ennþá hvernig ég komst í gegnum þetta“ Eygló Guðmundsdóttir eignaðist þrjú börn á innan við fimm árum á meðan hún var í námi. Yngsta barnið, Benjamín, greindist nokkurra vikna gamall með krabbamein og lést aðeins 12 ára að aldri. 5. janúar 2021 11:00 Hægt að spara fjármuni með því að gera þetta betur „Þetta er eiginlega góð saga um það hvernig það að hlusta, og samtalið getur leitt af sér,“ segir Willum Þór Þórsson þingmaður Framsóknarflokksins. Hann setti á árinu af stað vinnu og lagði fram þingsályktunartillögu, sem snýr að bættri þjónustu fyrir langveika og fatlaða og þeirra aðstandendur. 29. desember 2020 08:00 „Læknirinn okkar er bráðamóttakan og það er ansi dýr læknir“ „Honum var eins og mörgum í okkar hóp, ekki hugað langt líf, en hefur svo sannarlega afsannað það um langt skeið. Hins vegar höfum við oft dansað á línunni,“ segir Sigríður K. Hrafnkelsdóttir verkefnastjóri hjá Landlæknisembættinu. 22. desember 2020 08:00 Mest lesið „Mjög fallegt“ hús og „fullfrágengin“ lóð Lífið Þeir fátæku borga brúsann Gagnrýni Fyrstur til að skíða niður Everest án súrefnis Lífið „Það sýður miklu frekar upp úr við uppvaskið“ Lífið Elli Egils hélt að Elli Egils væri grín Lífið Selja íbúð í Vesturbænum: „Við eigum of mörg börn til að búa í henni áfram“ Lífið Elli Egils hannaði hátalara fyrir Bang & Olufsen Lífið Auður í Bæjarbíói: Frá slaufun í standandi fagnaðarlæti Gagnrýni Hefur keypt fasteignir fyrir rúman milljarð íslenskra króna á árinu Lífið Ástfangin á ný Lífið Fleiri fréttir Lamaðist og missti sjón en fann styrk í sjálfri sér Víkingur heiðar hlaut gullverðlaun Konunglega fílharmóníufélagsins Fyrstur til að skíða niður Everest án súrefnis „Það sýður miklu frekar upp úr við uppvaskið“ „Mjög fallegt“ hús og „fullfrágengin“ lóð Elli Egils hannaði hátalara fyrir Bang & Olufsen Elli Egils hélt að Elli Egils væri grín Framtíð Ísraela í Eurovision ákveðin í nóvember Fargufan nýjasta æðið á Íslandi Selja íbúð í Vesturbænum: „Við eigum of mörg börn til að búa í henni áfram“ Lýsir raunum einhleypra í Reykjavík: „Tilhugalífið minnir á lélegt bókunarkerfi“ Þetta eru uppáhalds barnabækur ráðherranna Ástfangin á ný Hollywood-stjarna slær sér upp með prins „Er ekki hér til að keppast um fegurð“ Þriðja í heiminn hjá Rihönnu og A$AP Rocky Er ekki eðlilegt að stunda kynlíf á afmælinu? Hefur keypt fasteignir fyrir rúman milljarð íslenskra króna á árinu Minntist bróður síns fyrir fullum sal Leiðir skilja hjá Svala og Jóhönnu Stella og Davíð sjóðheitt nýtt par Elín tendrar eldana fyrir Laufeyju Mun aldrei gleyma augnaráði bílstjórans Óvænt stjörnuskipti í jólasýningu Þjóðleikhússins Unnur Birna verður Elma „Þrisvar sinnum hefur mér verið hótað lífláti“ Bragðgóð graskers- og púrrlaukssúpa með karrý og kókosmjólk Claudia Cardinale er látin O (Hringur) hlaut aðalverðlaun leikinna mynda á Nordisk Panorama Framkvæmdastjóri Olís selur glæsihús í Garðabæ Sjá meira
„Ég veit ekki ennþá hvernig ég komst í gegnum þetta“ Eygló Guðmundsdóttir eignaðist þrjú börn á innan við fimm árum á meðan hún var í námi. Yngsta barnið, Benjamín, greindist nokkurra vikna gamall með krabbamein og lést aðeins 12 ára að aldri. 5. janúar 2021 11:00
Hægt að spara fjármuni með því að gera þetta betur „Þetta er eiginlega góð saga um það hvernig það að hlusta, og samtalið getur leitt af sér,“ segir Willum Þór Þórsson þingmaður Framsóknarflokksins. Hann setti á árinu af stað vinnu og lagði fram þingsályktunartillögu, sem snýr að bættri þjónustu fyrir langveika og fatlaða og þeirra aðstandendur. 29. desember 2020 08:00
„Læknirinn okkar er bráðamóttakan og það er ansi dýr læknir“ „Honum var eins og mörgum í okkar hóp, ekki hugað langt líf, en hefur svo sannarlega afsannað það um langt skeið. Hins vegar höfum við oft dansað á línunni,“ segir Sigríður K. Hrafnkelsdóttir verkefnastjóri hjá Landlæknisembættinu. 22. desember 2020 08:00