„Það er alltaf sami rammi en ramminn er aldrei eins. Af því að hver lína á sitt sérstaka vandamál sem þú leysir úr og það er ýmislegt, kannski ný efni eða eitthvað.“
Fimmta myndbandið af Á bak við vöruna er helgað Steinunni. sem er án efa áhrifamesti fatahönnuður Íslands. Steinunn ruddi veginn fyrir komandi kynslóðum með alþjóðlegri sýn og handbragði.
„Ég byrja yfirleitt alltaf á litum. Ég tek langan tíma og leik mér að litunum fram og til baka, legg þá til hliðar og tek þá aftur fram. Hvað er næst? Hvað gerist?“
Þekkir gínurnar vel
Steinunn segist teikna nokkur hundruð skissur fyrir hverja einustu línu og velur svo úr þeim síðar í ferlinu. Þær halda svo áfram að þróast.
„Þegar maður er búinn að gera svona mikið í gegnum tíðina að þá veit maður að þessi teikning er ekki endanleg.“
Steinunn stundaði nám í París og New York og eftir útskrift frá Parson School of Design starfaði hún um árabil hjá erlendum tískuhúsum á borð við Calvin Klein og La Perla. Frá árinu 2000 hefur Steinunn rekið eigið vörumerki og verslun í verbúðunum á Granda.
Steinunn notar mikið gínur í hönnunarferlinu sínu sem hún þekkir vel, enda ólíkar í laginu. Í viðtalinu segist hún vera að íhuga að gefa þeim öllum nafn. „Hver líkami er öðruvísi þannig að ég þekki gínurnar líkamlega mjög vel.“
Gínurnar notar hún meðal annars til að búa til heildarsýn fyrir hverja línu.
„Sem mér finnst mjög gaman að fara inn í. Semsagt hvert er hún að fara? Hvert er konan að fara? Hvað er að gerast? Ég er með 27 gínur í vinnunni.“
Hægt er að horfa á viðtalið við Steinunni í heild sinni í þættinum hér ofar í fréttinni.
Verkefnið Á bak við við vöruna er röð örmyndbanda í heimildarmyndaformi frá Blóð stúdíó. Í þáttunum er skyggnst inn í heim íslenskra frumkvöðla og hönnuða sem starfrækja rekstur sinn í skapandi grósku Miðborgarinnar. Íslensk hönnun er ungt fag í stöðugum vexti og henni fylgir gríðarleg tækifæri í atvinnu- og verðmætasköpun.
Markmið myndbandanna er að auka sýnileika fagsins og draga fram raunhæfa mynd af einstaklingunum sem þar standa á bak við og hvernig vörur þeirra verða til - allt frá hugmynd, yfir að söluvænni vöru í verslun. Með því að auka þennan sýnileika og samtímis fræða áhorfandann er verið að virkja hann sem mögulegan neytenda og þar með stuðla að aukinni sjálfbærni hönnunar og að uppvexti þess frumkvöðlastarfs innanlands.