Ekki vera geðveik Eva Sjöfn Helgadóttir skrifar 26. janúar 2021 13:00 Það fólk sem er svo óheppið að upplifa það á lífsleiðinni að fá líkamlega sjúkdóma allt frá beinbroti til greiningar um krabbamein. Þeir einstaklingar fá alla okkar samhygð, stuðning og þjónustu. Auðvitað! Það væri á skjön við það sem við skilgreinum sem mannréttindi ef þau fengju ekki þjónustu við hæfi við beinbroti eða alvarlegum sjúkdómum sem gætu dregið þau til dauða. Það væri á skjön við allt sem við trúum á í okkar samfélagi ef við myndum ekki sinni veikasta fólkinu okkar með bestu meðferð hverju sinni. Þá getum við spurt okkur eru banvænir sjúkdómar mis mikilvægir? Er fólkið sem veikist af alvarlegum sjúkdómum mis mikilvægt? Ef þingmenn væru spurðir að þessu myndu þeir væntanlega svara neitandi. Staðreyndin er þó sú að það skiptir máli. Það má meðal annars sjá með því að velta fyrir sér hvers vegna Heilbrigðisráðherra þyki í lagi að setja einungis 5% af því fjármagni sem áætlað er að þurfi til uppfylla niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu í fjárlög þessa árs. Umhverfi og líðan Við sem samfélag endurspeglumst í því hvernig við sinnum okkar viðkvæmustu hópum, öldruðum, börnum, veikum, öryrkjum og fötluðum. Veltum aðeins fyrir okkur hvað umhverfi hefur mikil áhrif á líðan okkar. Geðdeildir spítalanna eru deildir þar sem að veikt fólk kemur til að öðlast hugarró. Því mætti ætla að umhverfið væri fallegt og vel hlúð að því til að notendum liði vel. Það að vera í góðu umhverfi hefur áhrif á líðan okkar. Raunin á Íslandi er sú að geðdeildin á Hringbraut er eins og hún hafi seinast verið innréttuð 1953 og Kleppsspítali sem er endurhæfingar geðdeild er nú ekki skárri. Starfsfólkið reynir sitt besta í ómögulegum aðstæðum í fjársveltu kerfi. Þar sem að búsetuúrræði fyrir geðfatlaða eru mjög takmörkuð þá er raunin sú að margir eru alltof lengi inni á spítala í óásættanlegu umhverfi. Búseta geðfatlaðra Fólk sem þarf að komast út í lífið og í sína eigin íbúð eða annað er oft bent á að fara á leigumarkaðinn þar sem að skortur á íbúðum fyrir þennan hóp er algjör. Jafnvel þó að einstaklingurinn sé metinn sem svo að besta meðferðin fyrir hann væri að fara í þjónustuíbúð eða búsetukjarna þá er biðin eftir þeim úrræðum oft eitt til tvö ár eða jafnvel lengur. Fólki er þó vísað út af spítalanum þar sem að endurhæfing er búin en hvað tekur við? Einstaklingar fara á leigumarkaðinn og margir flytja heim til foreldra eða annarra aðstandenda. Langar einhverjum fullorðnum einstakling að búa á sófanum hjá foreldrum sínum? Ekki langar mig það en þér? Sú lausn ef lausn skal kalla er ekki neinum til bóta. Þá sérstaklega ekki manneskju sem er að reyna að byggja sig upp og hafa trú á eigin getu að fóta sig í samfélaginu. Löng innlögn á spítala getur haft slæm áhrif á sjálfsmynd okkar. Þegar að spítalinn og sveitarfélögin sjá sér ekki fært um að sinna endurhæfingu veikasta fólksins okkar á réttan hátt þá spyr maður sig, hvers konar samfélagi búum við í? Hvað er það sem að skiptir máli? Ætlum við öll að horfa framhjá þeirri eymd sem að margir upplifa vegna skorts á þjónustu í geðheilbrigðiskerfinu og öllum mannslífum sem við missum vegna geðsjúkdóma. Það eru dæmi um að fólk sé inni á geðdeildum í hátt í tvö ár vegna skorts á búsetuúrræðum. Finnst okkur þetta bara allt í lagi? Vindum rétt og örugglega ofan af margra áratuga vanrækslu Heilbrigðisráðherra hefur komið fram og sagt frá öllum þeim peningum sem að farið hafa í geðheilbrigðiskerfið og hversu langt við erum komin. Við skulum ekki gleyma því að Íslendingar eru að nota mun meira að geðlyfjum en nágrannaþjóðir okkar. Inni á hjúkrunarheimilum árið 2018 þá var geðlyfjanotkunin 54,5% samkvæmt heimildum úr Læknablaðinu í grein eftir Pál Biering. Árið 2017 voru börnin okkar að nota margfalt meira magn af lyfjum en börn nágrannaþjóða en þá heimild má nálgast á heimasíðu Embætti landlæknis. Þar má sjá að íslensk börn fimm ára og yngri nota þrefalt meira af róandi og kvíðastillandi lyfjum borið saman við hin norðurlöndin. Þegar horft er til eldri barna frá fimm til níu ára þá kemur í ljós að tuttugufalt fleiri börn á Íslandi fá ávísað þunglyndislyfjum í þessum aldurflokk en á öðrum norðurlöndum. Árið 2018 var fimmta hver kona á Íslandi á þunglyndislyfjum og ellefu þúsund einstaklingar á svefnlyfjum. Finnst okkur þetta ásættanlegt? Aldraðir, börn og við hin séum á lyfjum við hinum ýmsa tilfinningavanda kannski allt okkar líf. Þegar að vitað er að besta og fyrsta meðferð við mörgum kvíðaröskunum er til dæmis er samtalsmeðferð en ekki lyf. Stundum þarf fólk lyf sem hækju á meðan unnið er í ákveðnum vanda en við erum á rangri leið þegar að Íslendingar eru að setja met í geðlyfja og svefnlyfjanotkun á norðurlöndunum. Horfumst í augu við vandann Getum við virkilega ekki veitt fólkinu okkar og þá sérstaklega viðkvæmustu hópunum betri geðheilbrigðisþjónustu. Kæru Íslendingar fjármagnið sem fer í geðheilbrigðiskerfið og niðurgreiðslu á sálfræðiþjónustu er einungis dropi í hafið til að vinda ofan af margra ára vanrækslu á geðheilbrigðisþjónustu. Vandinn er greinilegur, við þurfum í sameiningu að finna lausn á honum en svarið er klárlega ekki það að auka lyfjaskammtinn eða senda fólk á sófann hjá foreldrum. Ef við gerum þetta rétt þá munum við án efa bjarga mannslífum sem að skipta jafn miklu máli og önnur mannslíf. Höfundur er sálfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Geðheilbrigði Eva Sjöfn Helgadóttir Mest lesið Halldór 23.8.2025 Halldór Heildstætt heilbrigðiskerfi – hagur okkar allra Alma D. Möller Skoðun Vanþekking eða vísvitandi blekkingar? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun „I believe the children are our future…“ Karen Rúnarsdóttir Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir Skoðun Skólaskætingur Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir Skoðun Er Akureyri að missa háskólann sinn? Aðalbjörn Jóhannsson Skoðun Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir Skoðun Eldri borgarar – áhrif aðildar að Evrópusambandinu (ESB) Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson Skoðun Skoðun Skoðun Heildstætt heilbrigðiskerfi – hagur okkar allra Alma D. Möller skrifar Skoðun Vanþekking eða vísvitandi blekkingar? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun „I believe the children are our future…“ Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Mikilvægi félagasamtaka og magnað maraþon Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Allt sem ég þarf að gera Dagbjartur Kristjánsson skrifar Skoðun Eldri borgarar – áhrif aðildar að Evrópusambandinu (ESB) Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Meiri gæði og mun minni álögur - Hveragerðisleiðin í leikskólamálum Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Halldór Benjamín Hreinsson,Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Notkun ökklabanda Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Skólaskætingur Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir skrifar Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson skrifar Skoðun Ný sókn í menntamálum Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð, fálmandi mjálm eða aðgerðir? Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Vin í eyðimörkinni – almenningsbókasöfn borgarinnar Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Er Akureyri að missa háskólann sinn? Aðalbjörn Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu staðreyndir um alvarlegustu kvenréttindakrísu heims Stella Samúelsdóttir skrifar Skoðun Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Mestu aularnir í Vetrarbrautinni Kári Helgason skrifar Skoðun Fjárfestum í fyrsta bekk, frekar en fangelsum Hjördís Eva Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftirlíking vitundar og hætturnar sem henni fylgja Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Gagnvirkni líkama og vitundar til heilbrigðis Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Nýjar lausnir í kennslu – gamlar hindranir Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Kópavogsleiðinn Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Samstarf sem skilar raunverulegum loftslagsaðgerðum Nótt Thorberg skrifar Skoðun Lærum að lesa og reikna Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Loforðið sem borgarstjóri gleymdi Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kristrún, það er bannað að plata Snorri Másson skrifar Skoðun Öndunaræfingar í boði SFS Vala Árnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Meiri gæði og mun minni álögur - Hveragerðisleiðin í leikskólamálum Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Halldór Benjamín Hreinsson,Njörður Sigurðsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar
Skoðun Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar
Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson skrifar