Þegar konur hafa saflát, eða skvörta, þá losast vökvi út um op kirtilganganna hjá þvagrásinni. Fullnæging kemur oft í kjölfarið en þarf þó ekki alltaf að fylgja, líkt og þegar karlar fá sáðlát.
Fólk hefur verið að tala um skvört í aldanna rásir. Konur voru yfirleitt bara alltaf svo hræddar um að þær væru að pissa á sig eða fá þvagleka þegar þetta gerðist. Þetta varð til þess að þær óttuðust þetta og héldu því frekar aftur af sér í kynlífi. Fjallað var um þetta í læknisfræðinni í fleiri aldir en svo datt það alveg út um 16. öld, eins og svo margar aðrar fræðilegar umfjallanir um píkuna og píkuheilsuna. Þetta varð bara eins og einhver Bermúda þríhyrningur, sem þetta er bara alls ekki.
Sagði Sigga Dögg í viðtalinu sem hægt er að nálgast hér.
Út frá þessari umfjöllun spurðu Makamál lesendur Vísis um reynslu þeirra af safláti. Aldrei hafa jafn margir tekið þátt í könnun Makamála eða rúmlega tíu þúsund manns.
Könnunin var tvískipt. Í þeirri fyrri voru konur spurðar hvort þær hafi fengið skvört-fullnægingu og í þeirri seinni var fólk spurt hvort að það hafði veitt skvört-fullnæginu.
Makamál báru niðurstöðurnar undir Siggu Dögg sem hafði þetta að segja.
Vá, frábært hvað það var mikil þátttaka í könnuninni, elska það. Niðurstöðurnar koma mér þó ekki á óvart en ég sé að það þarf samt sem áður að fjalla meira um þetta mál og fræða fólk enn meira.
21% kvenna svöruðu því að þær væru ekki vissar hvort að þær hafi upplifað það að skvörta. Það er mjög misjafnt eftir konum hvað það losast mikill vökvi þegar þetta gerist svo að það er mjög eðlilegt að ekki allar konur átti sig endilega á því þegar þær skvörti.
Tæplega helmingur kvenna segist hafa upplifað skvört-fullnægingu og rúmlega helmingur fólks segist hafa veitt hana.
Hægt er að sjá nákvæmari niðurstöður hér fyrir neðan.
Niðurstöður*
Hefur þú fengið skvört-fullnægingu?
Já - 43%
Nei, en langar - 26%
Nei, hef ekki áhuga - 10%
Er ekki viss - 21%
Hefur þú veitt skvört-fullnægingu?
Já - 52%
Nei, en langar það - 31%
Nei hef ekki áhuga - 7%
Er ekki viss - 10%
Umsjónarmaður Makamála mætti í Brennsluna á FM957 og ræddi niðurstöðurnar ásamt því að kynna til leiks nýja Spurningu vikunnar. Hægt er að hlusta á líflegar umræður hér fyrir neðan.
*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.