Í tilkynningu segir að opnun Arena gjörbylti umhverfi rafíþrótta á Íslandi og sé stærsta fjárfesting í geiranum til þessa.
Á annað hundrað gesta munu geta notið ábyrgrar tölvuleikjaspilunar ásamt veitinga og annarrar tengdrar afþreyingar, bæði í opnum rýmum og einkaherbergjum.
Samstarf við nálæg íþróttafélög um skipulagðar æfingar í rafíþróttum er í undirbúningi en yfir 800 börn og ungmenni æfa rafíþróttir í hverri viku á Íslandi. Þar æfa þau undir öruggri handleiðslu þjálfara þar sem þau fá hugar- og líkamsþjálfun auk æfinga í leikjunum sjálfum að sögn Daníels Rúnarssonar, hjá Arena.

„Við hlökkum mikið til að opna dyrnar í sumar og bjóða fólk velkomið í fyrsta flokks rafíþróttamiðstöð - sannkallaðan þjóðarleikvang fyrir ört vaxandi grein. Jafnframt hyggjumst við bjóða upp á frábærar veitingar og nútíma afþreyingu fyrir alla sem áhuga hafa á tölvuleikjum. Arena er stærsta fjárfesting sem gerð hefur verið í rafíþróttum á Íslandi og væntum við mikils af útkomunni.” segir Daníel.
Heimili Rafíþróttasamtaka Íslands
Arena verður jafnframt nýtt heimili Rafíþróttasamtaka Íslands (RÍSÍ) en saman munu RÍSÍ og Arena vinna að útbreiðslu rafíþrótta á Íslandi samkvæmt nýrri viljayfirlýsingu milli félaganna. Einnig munu Arena og RÍSÍ setja kraft í aukna framleiðslu á sjónvarpsefni tengdu rafíþróttum, hvort sem er beinum útsendingum frá keppnum eða almennri umfjöllun.

„Það er alltaf gaman að sjá metnaðarfull verkefni fæðast og ná þroska líkt og rafíþróttir hafa verið að gera. Þetta er enn ein viðurkenningin fyrir rafíþróttir þar sem okkar markmið hefur alltaf verið að opinbera iðkunina. Samstarf með Arena við gerð heimavallar íslenskrar rafíþróttamenningar er frábært næsta skref í að opna dyrnar upp á gátt og hafa samkomustað fyrir alla sem spila tölvuleiki. Með tilkomu nýs framleiðsluarms Rafíþróttasamtakanna í samstarfi við Arena munum við framleiða allt okkar efni sjálf og auka fjölbreytni í framleiðslu á tölvuleikjatengdu afþreyingarefni á íslensku. Það er augljóst að okkar mati að þetta mun hafa jákvæð áhrif á samfélagið allt.” segir Aron Ólafsson, framkvæmdastjóri Rafíþróttasamtaka Íslands.
Útsendingarmiðstöð Stöðvar 2 Esports
Arena verður einnig heimili keppnishalds í rafíþróttum en útsendingarmiðstöð og stúdío fyrir Stöð 2 Esport verður á Arena þar sem sérfræðingar stöðvarinnar munu lýsa stærstu viðureignum hverrar viku frá staðnum og keppnisliðum býðst að spila þar einnig.

„Okkur er það mikið ánægjuefni að halda áfram að vinna að útbreiðslu rafíþrótta á Íslandi, ekki aðeins á Stöð 2 Esport heldur á öllum okkar miðlum,“ segir Þórhallur Gunnarsson framkvæmdastjóri miðla hjá Sýn hf.
„Við lítum á okkar hlutverk sem mikilvægt í því ferli að koma rafíþróttum á þann stall sem þær verðskulda í íslensku samfélagi, og samkomulag RÍSÍ við Arena er stórt skref á þeirri vegferð. Við hlökkum til að starfa áfram með RÍSÍ og nú Arena í að auka umfjöllun og sýnileika rafíþrótta í íslenskum fjölmiðlum og takast á við þau spennandi verkefni sem fram undan eru, svo sem í Vodafone-deildinni, úrvalsdeildinni í eFótbolta og nýrri keppni framhaldsskólanna.”

Vísir er í eigu Sýnar.