Nýlega skutust myndir af henni frá árinu 2018 í dagsljósið, en þar sést hún stödd í háskólapartíi þar sem þemað virðist hafa verið „plantekra í gömlu Suðurríkjunum.“ Hefur Kirkconnell verið sökuð um kynþáttafordóma og ónærgætni gagnvart svörtu fólki, en svartir þrælar voru stór hluti íbúafjölda Suðurríkjanna á því tímabili sem partíinu virðist hafa verið ætlað að fanga. Kirkconnell hefur síðan beðist afsökunar.
Nú hefur Harrison einnig gert það, eftir að hann eyddi dágóðum tíma sem gestur í þættinum Extra í að ræða um málið. Þar gerði Harrison lítið úr málinu og taldi ósanngjarnt að gagnrýna Kirkconnell, þar sem myndin hefði verið tekin í fortíðinni, eins og reyndar allar ljósmyndir.
Harrison hefur nú beðist afsökunar og tilkynnt að hann muni tímabundið stíga til hliðar frá þáttunum. Í afsökunarbeiðni sem hann birtir á Instagram segir hann að síðustu dögum hafi hann varið í að hlusta á fólk sem hann hafði sært. Ekki liggur fyrir hversu lengi Harrison hyggst halda sig til hlés.