Lífið samstarf

Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus

Danól
Haribo-bangsinn verður í Bónus á Smáratorgi og í Miðhrauni næstu tvo föstudaga. Þau sem mæta í búningum geta unnið miða í bíó.
Haribo-bangsinn verður í Bónus á Smáratorgi og í Miðhrauni næstu tvo föstudaga. Þau sem mæta í búningum geta unnið miða í bíó.

Danól og Bónus bjóða upp á hrekkjavökufjör næstu tvo föstudaga og hvetja alla til að mæta í búningum í Bónus á Smáratorgi og í Miðhrauni. Haribo-bangsinn verður á staðnum og sérstakir hrekkjavökukastalar úr Haribo-nammi. Andlitsmálning í boði og skemmtilegir glaðningar.

Danól og Bónus hefja hrekkjavökugleðina snemma í ár. Búið er að reisa sérstaka Haribo-kastala í tveimur verslunum Bónus, á Smáratorgi og í Miðhrauni. Valdís María Einarsdóttir hjá Danól lofar skemmtilegri stemningu.

„Við sjáum hvað hrekkjavakan er að verða vinsæl á Íslandi og viljum taka þátt í gleðinni og gera eitthvað skemmtilegt. Í ár ætlum við að gera sérstaklega mikið úr henni með Haribo,“ segir Valdís.

„Við hvetjum alla til að mæta í búningi. Það verður andlitsmálning í boði, við gefum nammi og Haribo-bangsinn verður á staðnum.“ 

 Gestir fá einnig nammipoka sem geta komið sér vel þegar haldið verður af stað á hrekkjavökunni sjálfri og bankað upp á í húsum.

Bíóferð fyrir búningafólkið

Bíómiðar á kvikmyndina Skrímslaskólinn í Laugarásbíó verða í boði fyrir fyrstu gestina sem mæta í búningi, meðan birgðir endast. Þá verður einnig hægt að bregða sér á bak við myndaspjald og smella af skemmtilegri hrekkjavökumynd.

Fyrstu kastalarnir hér á landi

Haribo á yfir hundrað ára sögu og notið vinsælda hér á landi í áratugi. Margir eiga sínar uppáhaldstegundir, eins og bangsana, spæleggin eða kirsuberin. Þegar hrekkjavakan nálgast fær vampýrunammið síðan sitt pláss í sviðsljósinu.

„Haribo hefur fylgt okkur í mörg ár. Erlendis er hrekkjavakan stór hátíð sem vörumerkið tengir sig við og þaðan kemur fyrirmyndin að bæði nammipokanum og kastalanum,“ segir Valdís.

„Þetta er í fyrsta sinn sem við gerum þetta hér. Kastalarnir hafa verið byggðir í Danmörku en eru nýjung hjá okkur í ár. Þetta er skemmtilegt samstarfsverkefni með Bónus og vonandi verða þeir á fleiri stöðum á næsta ári.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.