Stjörnurnar mættu á Hatrið Stefán Árni Pálsson skrifar 26. febrúar 2021 12:31 Góð stemning var á forsýningunni í Háskólabíói í gærkvöldi. Myndir/Hafsteinn Snær Þorsteinsson Heimildamyndin A Song Called Hate, Hatrið á íslensku, var forsýnd með pompi og prakt í Háskólabíói í gærkvöld og mættu þónokkuð margir á sýninguna. Myndin segir frá Eurovisiongjörningi Hatara árið 2019 og því sem gerðist á bak við tjöldin í Ísrael og Palestínu.
Hljómsveitin Hatari hafði starfa í jaðarsenu íslenska menningarlífs frá árinu 2016 og var lítt þekkt. Það breyttist eftirminnilega árið 2019 þegar meðlimir hennar, Matthías Tryggvi Haraldsson, Klemens Hannigan og Einar Hrafn Stefánsson, ákváðu að senda lagið Hatarið mun sigra í Söngvakeppni sjónvarpsins. Var þetta grín eða alvara hjá þessu and-kapítalíska BDSM teknóbandi? Var þetta brandari sem gekk of langt? Viðbrögðin voru hörð og um tíma virtust allir hata hatara. Hatari er þriggja manna hljómsveit en Eurovisiongjörningurinn samanstóð af 13 manns sem hafði að geyma dansara, leikara og hönnuði. Saman lögðu þau af stað í óvissuferð þann 2. maí 2019 sem enginn vissi hvernig myndi enda. Staðráðin í að taka sér dagskrárvaldið og setja Eurovision í pólitískt samhengi átakanna á milli Ísrael og Palestínu lögðu þau af stað með fyrirheit um óvæntar uppákomur. Gísli Marteinn Baldursson, Skarphéðinn Guðmundsson og Rúnar Freyr Gíslason mættu allir á forsýninguna. „Ég vildi skoða hvort óþekkt hljómsveit frá Íslandi gæti brotist í gegnum meginstrauminn og náð að koma pólitískum skilaboðum áframfæri með því að taka þátt í Eurovision söngvakeppninni sem er eitt stærsta sjónvarpsprógramm í heimi,” segir Anna Hildur um tilurð myndarinnar. Myndin hefur fengið einróma lof gangrýnenda. Sænska ríkisúvarpið fjallaði um hana undir fyrirsögninni „Þau þorðu að taka afstöðu í Eurovision deilunni”, sem vísar til þess að Hatari var eini þátttakandinn sem lét til sín taka um málefni Palestínu í keppninni. Í Dagens Nyheter er farið lofsamlegum orðum um myndina og segir hana draga fram mannlegu hliðina á pólitík og aktífisma listamanna. Margir aðrir gagnrýnendur hafa tekið í sama streng og segja myndina þarfa og tímabæra. Ragnar Kjartansson myndlistarmaður og Ingibjörg Sigurjónsdóttir. A Song Called Hate er frumraun Önnu Hildar Hildibrandsdóttur sem leikstjóra en hún framleiðir jafnframt myndina í gegnum fyrirtæki sitt Tattarrattat. Meðeigendur hennar Iain Forsyth og Jane Pollard sem leikstýrðu meðal annars 20.000 Days on Earth með Nick Cave eru yfirframleiðendur myndarinnar ásamt Skarphéðni Guðmundssyni hjá RÚV. Baldvin Vernharðsson sem hefur leikstýrt og filmað mikið af myndböndum Hatara var kvikmyndatökustjóri. Myndin fer í almennar sýningar í Háskólabíói í kvöld og verður í kjölfarið sýnd í bíóhúsum víða um land. Sumir mættu í búningum. Klemens Hannigan, Matthías Haraldsson og Einar Stefánsson bynda bandið Hatari. gjgjd Baldur Þórhallsson, Felix Bergsson og Elíza Reid skemmtu sér vel. Hér má sjá Sigurjón Sighvatsson, Önnu Hildi og Skarphéðinn Guðmundsson. Ragnhildur Steinunn og Guðrún Jóna létu sig ekki vanta. Hatarahópurinn sem fór út til Ísrael. Anna Hildur Hildibrandsdóttir leikstjóri og framleiðandi og Baldvin Vernharðsson kvikmyndatökumaður fylgdu þeim eftir allan tímann og unnu að heimildamynd um Eurovisiongjörninginn. A Song Called Hate var frumsýnd á RIFF sl haust og heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Varsjá þar sem hún var tilnefnd til Free Spirit verðlaunanna. Myndin hefur á undanförnum misserum gert það gott á evrópskum kvikmyndahátíð og var meðal annars tilnefnd til Dragon verðlaunanna sem besta norræna heimildamyndin á Gautaborgarhátíðinni nú í febrúar. Baldvin er hér til vinstri, Hildur í miðjunni og Elíza Reid forsetafrú lengst til hægri. Hér að neðan má sjá brot úr myndinni.
Bíó og sjónvarp Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Fleiri fréttir Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Sjá meira