Tiger lenti í alvarlegu bílslysi í síðustu viku en hann liggur nú á Cedards-Sinai spítalanum og jafnar sig.
Tiger fór alvarlega út af leið er hann keyrði bíl sinn á þriðjudag en hinn 45 ára kylfingur er þó sagður í góðum höndum og við góða heilsu.
Loka dagurinn á World Golf Championship fer fram í dag og yfirleitt á síðasta degi allra móta þá klæðist Tiger rauðum bol og svörtum buxum.
Collin Morikawa er í forystu á World Golf meistaramótinu. Hann er tveimur höggum á undan Brooks Koepka en Collin verður klæddur í rautt og svart í dag.
Sömu sögu má segja af til að mynda Patrick Reed, Roory McIlroy og Justin Thomas. Þar með vilja þeir sýna hinum margfalda meistara stuðning.
Anikka Sörenstram, sem er að spila á sínu fyrsta LPGA móti í þrettán ár, ætlar líka að vera klædd í rautt og svart er hún keppir á Gainbridge mótinu í Orlando.
Lokadagurinn á World Golf Championship verður í beinni á Stöð 2 Golf í dag en hefst útsending klukkan 17.00 á Stöð 2 Golf og stendur fram eftir kvöldi.
Rory McIlroy and other top golfers to wear red and black in final round today in tribute to Tiger Woods https://t.co/1qtwLiIbtY
— MailOnline Sport (@MailSport) February 28, 2021

Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum. Helgarpassa að Stöð 2 Golf má kaupa á kerfum Vodafone.