Nýtt varðskip sem fær líklega nafnið Freyja Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. mars 2021 14:23 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Georg Lárusson um borð í Þór í dag þar sem tilkynnt var um kaupin. Aðsend Ríkisstjórnin hefur fallist á tillögu dómsmálaráðherra þess efnis að hafist verði handa við kaup á nýlegu varðskipi. Ástæðan er alvarleg bilun í vél varðskipsins Týs. Kostnaður við viðgerð er talin nema meiru en sem svarar verðmæti skipsins eða um hundrað milljónum króna.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir að öryggi landsmanna verði ekki tryggt með einu varðskipi þótt öflugt sé. Nýlegt skip muni koma í stað Týs sem þjónað hafi landsmönnum með glæsibrag í 46 ár. Ráðherra hefur lagt til nafnið Freyja á nýtt skip. „Það er Landhelgisgæslan sem mun ákveða nafnið endanlega. En ég lagði hér til í dag, þar sem skipin hafa auðvitað sótt nöfn sín í norræna goðafræði, að það væri ekki verra ef það yrði Freyja sem stæði við hlið Þórs við björgun fólks á sjó og að sinna vörnum landsins,“ segir Áslaug í samtali við fréttastofu. Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að nýlega hafi komið ljós alvarleg bilun í vél varðskipsins Týs. „Landhelgisgæslan á ekki nauðsynlega varahluti, smíði þeirra er tímafrek og ekki yrði um varanlega viðgerð að ræða. Reynt var að fá varahluti úr varðskipinu Ægi en þá kom í ljós að sama bilun var í vél hans. Einnig kom í ljós við slipptöku í janúar að tveir af tönkum skipsins eru ónýtir sökum tæringar og sjókælikerfi skipsins lekur. Slíkur leki ógnar öryggi skips og áhafnar. Varðskipið Týr er 46 ára gamalt og ástand þess orðið bágborið. Ómögulegt er að sjá fyrir næstu alvarlegu bilanir. Kostnaður við að gera skipið siglingarhæft er talinn nema meiru en sem svara verðmæti skipsins eða um 100 milljónum króna.“ Tímasetningin sögð góð Staða á mörkuðum fyrir kaup á nýlegum skipum, t.d. þjónustuskipum úr olíuiðnaðinum, sé talin einkar góð um þessar mundir. „Um er að ræða skip sem henta vel til að sinna verkefnum Landhelgisgæslunnar með mikla dráttargetu, góða stjórnhæfni, gott dekkpláss og fullkominn slökkvibúnað. Skip þessi eru vel útbúin til björgunarstarfa og til aðstoðar við almannavarnir. Þá eru þau mun umhverfisvænni en eldri skip.“ Tilkynnt var um tímamótin um borð í varðskipinu Þór í dag.Vísir/EinarÁ Í ljósi þess um hve brýnt mál er að ræða sem varðar þjóðaröryggi, almannavarnir, öryggi sjófarenda og auðlindagæslu hafi ríkisstjórnin samþykkt tillögu dómsmálaráðherra þess efnis að þegar verði hafist handa við kaup á nýlegu skipi. Heimild er í 6. gr. fjárlaga fyrir árið 2021 að selja varðskipin Tý og Ægi og leigja eða kaupa hagkvæmari skip í staðinn. Starfshópur þriggja sérfræðinga sem skipaður verður fulltrúum dómsmálaráðuneytis, Landhelgisgæslunnar og Ríkiskaupa mun vinna að undirbúningi og framkvæmd kaupanna. Öllu er afmörkuð sín stund „Vegna þeirrar stöðu sem upp er komin varðandi ástand varðskipsins Týs er afar brýnt að grípa án tafar til ráðstafana í því skyni að tryggja öryggi landsmanna með öflugu skipi til hliðar við varðskipið Þór. Ekki er unnt að halda uppi viðunandi öryggisstigi með aðeins einu varðskipi þótt öflugt sé og því lagði ég til og ríkisstjórnin samþykkti að hefjast þegar handa við kaup á nýlegu skipi sem mun koma í stað varðskipsins Týs sem hefur þjónað landsmönnum með glæsibrag í næstum hálfa öld,“ segir Áslaug Arna. Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, segir að með ákvörðun ríkisstjórnarinnar sé stigið mikilvægt framfaraskref í björgunarmálum þjóðarinnar. Georg ræddi stöðuna í Reykjavík síðdegis í dag. „Við hjá Landhelgisgæslunni fögnuð því að stjórnvöld hafi brugðist hratt og örugglega við þeirri stöðu sem upp kom. Varðskipið Týr á sér glæsta sögu og hefur þjónað þjóðinni og Landhelgisgæslunni afar vel í áranna rás. Öllu er afmörkuð stund og allt á sér sinn tíma. Kröfur nútímans eru aðrar og meiri en uppi voru fyrir hart nær hálfri öld. Samþykkt tillögunnar markar tímamót fyrir sjófarendur og íslensku þjóðina,“ segir Georg. Fréttin hefur verið uppfærð.
Landhelgisgæslan Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Varnarmál Mest lesið Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Innlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Innlent Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Innlent „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Innlent Fleiri fréttir Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Almar nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Sjá meira