Innlent

Fengu ekki lotuna sem tengd er mögulegri aukaverkun

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Landspítali í Fossvogi.
Landspítali í Fossvogi. Vísir/vilhelm

Landspítali hefur frestað bólusetningu starfsfólks með bóluefni AstraZeneca sem fara átti fram í dag eftir að notkun þess á landinu var stöðvuð tímabundið í morgun. Þá tekur spítalinn fram að hann hafi ekki fengið úthlutað AstraZeneca-bóluefni úr þeirri lotu sem tengd er mögulegri aukaverkun.

Sóttvarnalæknir tilkynnti í morgun að ákveðið hefði verið að stöðva tímabundið bólusetningu með bóluefni AstraZeneca hér á landi vegna fregna af hugsanlegum alvarlegum aukaverkunum af efninu í Evrópu.

„Landspítali hefur stöðvað bólusetningar starfsfólks með Covid-19-bóluefni frá AstraZeneca í dag, fimmtudaginn 11. mars, í ljósi þess að sóttvarnalæknir mælir með tímabundinni frestun á bólusetningum í varúðarskyni á meðan Lyfjastofnun Evrópu fjallar um möguleg tengsl bólusetningar með þessu tiltekna bóluefni við blóðtappa,“ segir í tilkynningu Landspítala í dag.

„Vert er að taka fram að Landspítali fékk ekki úthlutað AstraZeneca-bóluefni úr þeirri lotu sem tengd er mögulegri aukaverkun.“

Það starfsfólk sem þegar hafi fengið boð í bólusetningu í dag mun fá SMS þess efnis að henni sé nú frestað tímabundið. Framhaldið verði tilkynnt á vefsvæðum Landspítala og samskiptamiðlinum Workplace.

BÓLUSETNINGU STARFSFÓLKS MEÐ ASTRAZENECA FRESTAÐ TÍMABUNDIÐ Landspítali hefur stöðvað bólusetningar starfsfólks með...

Posted by Landspítali on Fimmtudagur, 11. mars 2021

Skoða tiltekna lotu

Greint var frá því í morgun að heilbrigðisyfirvöld í Danmörku hefðu ákveðið að stöðva tímabundið notkun bóluefnis AstraZeneca gegn Covid-19 eftir tilkynningar um að grunur sé um alvarlegar aukaverkanir varðandi blóðtappa. Notkuninni verður hætt í tvær vikur til að byrja með. Ein tilkynningin snýr að dauðsfalli. 

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði á upplýsingafundi almannavarna í dag að ekkert benti til þess að orsakasamhengi væri milli bólusetningarinnar og veikindanna, sem einnig hefur verið tilkynnt um í Austurríki. 

Fram kemur í tilkynningu frá Lyfjastofnun Evrópu í gær að tiltekin lota af bóluefni AstraZeneca, ABV5300, sé skoðuð með tilliti til umræddra mögulegra aukaverkana. Lotan telur eina milljón skammta, sem dreift var til sautján Evrópulanda, þar á meðal Íslands.

8.882 hafa þegar fengið fyrsta skammt af bóluefninu hér á landi en seinni skammtur er ekki gefinn fyrr en þremur mánuðum síðar.


Tengdar fréttir

Stöðva tímabundið bólusetningu með bóluefni AstraZeneca

Ákveðið hefur verið að stöðva tímabundið bólusetningu með bóluefni AstraZeneca hér á landi vegna fregna af hugsanlegum alvarlegum aukaverkunum af efninu í Evrópu. Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis á upplýsingafundi almannavarna í dag.

Danir hætta tíma­bundið notkun bólu­efnis AstraZene­­ca

Heilbrigðisyfirvöld í Danmörku hafa ákveðið að stöðva tímabundið notkun bóluefnis AstraZeneca gegn Covid-19 eftir tilkynningar um að grunur sé um alvarlegar aukaverkanir varðandi blóðtappa. Notkuninni verður hætt í tvær vikur til að byrja með.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×