Sumir segja að tilkoma samfélagsmiðla hafi að einhverju leyti flækt tilvist fólks sem er í sambandi. Áður voru samskiptin mann á mann, tveggja manna tal eða spjall í góðra vina hópi. Fæst var nú ritað niður og sögur um samskipti gengu mis sannar og réttar manna á milli.
Í dag er stór hluti þeirra samskipta sem við eigum í rituðu máli á einhverjum samfélagsmiðlum í símanum okkar. Þau blasa þar við svart á hvítu á skjánum. Sagan sem vinur þinn sagði þér af misheppnaða stefnumótinu, trúnóið sem þú áttir við bestu vinkonu þína á Facebook þegar þið voruð báðar einar heima að drekka rauðvín. Flest af þessum samskiptum eru ekki endilega leyndarmál en þó vilja flestir halda þessum samskiptum sem tveggja manna tali.
Svo er það spurningin hvaða samskipti eru viðeigandi og ekki þegar við erum í sambandi og auðvitað fer það allt eftir eðli sambandsins og forsögu. Ef það er saga um svik eða vantraust á milli fólks þá er ekki óalgengt að fólk reyni að komast í tölvu eða síma makans til að skoða samskiptin. Margir gætu þá spurt sig hvort sú gjörð sé ekki á gráu svæði og teljist sem ákveðin svik.
Í síðustu viku spurðu Makamál lesendur Vísis hvort að þeir hafi falið rafræn samskipti fyrir maka sínum. Tæplega tvö þúsund manns þátt í könnuninni.
Ef marka má niðurstöðurnar segist rétt rúmlega helmingur lesenda Vísis hafa einhverja reynslu af því að rafræn samskipti séu falin í ástarsambandi.
Svo er það spurning hvað fólk er að fela og af hverju. Eru þetta skilaboð sem eru óviðeigandi og teljast sem svik eða er þetta jafnvel trúnó á milli vina sem fólk vill alls ekki að geymist á rafrænu formi?
Niðurstöður*
Já - 28%
Já og ég hef komist að því að maki minn hefur falið rafræn samskipti fyrir mér - 14%
Nei - en maki minn hefur falið rafræn samskipti fyrir mér - 11%
Nei - 47%
Umsjónarmaður Makamála mætti í Brennsluna á FM957 og ræddi niðurstöðurnar ásamt því að kynna til leiks nýja Spurningu vikunnar. Hægt er að hlusta á líflegar umræður hér fyrir neðan.
*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.