Um er að ræða árlega netkosningu þar sem FIFA-spilarar geta sagt sína skoðun á því hvaða deildir þykir vanta í leikinn. Síðan er þó ekki tengd EA, framleiðanda leikjanna, og því ljóst kosningin er í besta falli ráðgefandi.
Í kosningunni kennir ýmissa grasa, en sú deild sem situr efst í kosningunni er gríska úrvalsdeildin, með rúmlega 28 þúsund atkvæði. Næst á eftir kemur sú ungverska, með yfir 15 þúsund atkvæði. Efsta deild karla á Íslandi, Pepsi Max-deildin, er heldur neðar á listanum. Hún situr í 85. sæti. Þegar þetta er skrifað hafa 374 lýst yfir áhuga á að hægt sé að spila með lið og leikmenn deildarinnar í FIFA 22.
Rétt á undan íslensku deildinni er sú súdanska með 453 atkvæði. Þá nartar sú nýsjálenska í hæla Pepsi Max-deildarinnar, með 349 atkvæði. Hér er hægt að greiða atkvæði og skoða niðurstöður könnunarinnar.
Hægt hefur verið að leika með íslenska karlalandsliðið í FIFA frá því árið 2017, en fyrsta útgáfan sem bauð upp á Strákana okkar var FIFA 18.