Arion hagnaðist um rúma sex milljarða Samúel Karl Ólason skrifar 5. maí 2021 17:38 Benedikt Gíslason, bankastjóri, segist ánægður með rekstur Arion banka á ársfjórðungnum og að öll helstu fjárhagsmarkmið hafi náðst. Vísir/Vilhelm Arion banki hagnaði um rúma sex milljarða króna á fyrsta fjórðungi ársins 2021. Arðsemi eiginfjár á tímabilinu var 12,5 prósent. Það er mun betri afkoma borið saman við fyrsta ársfjórðung 2020, þega bankinn tapaði rúmum tveimur milljörðum og afkoma eigin fjár var neikvæð um 4,6 prósent.
Í afkomutilkynningu bankans segir að afkoman sé betri en búast mætti við í krefjandi efnahagsumhverfi. Benedikt Gíslason, bankastjóri, segist ánægður með rekstur Arion banka á ársfjórðungnum og að öll helstu fjárhagsmarkmið hafi náðst. Telur hann að vel hafi gengið að reka bankann við krefjandi aðstæður. Heildareignir Arion banka voru 1,181 milljarður króna í lok mars. Í lok árs 2020 og upphafi fyrsta ársfjórðungsins, voru heildareignirnar 1,173 milljarðar. Það er hækkun um 0,7 prósent og eru þar með talin húsnæðislán sem jukust um 3,7 prósent. Í áðurnefndri tilkynningu segir að umsvif hafi verið töluverð í lánveitingum til fyrirtækja en vegna sölu á lánum til fagfjárfesta hafi fyrirtækjalánabók bankans lækkað lítillega. Eiginfjárhlutfall var 26,9 prósent í lok mars. Arðgreiðsla og endurkaup á hlutabréfum bankans námu 14,8 milljörðum króna. Áhugasamir geta kynnt sér frekari og ítarlegri upplýsingar í kynningum Arion banka sem nálgast má hér á vef fyrirtækisins. Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka: „Við erum ánægð með rekstur bankans á fyrsta ársfjórðungi. Öll helstu fjárhagsmarkmið náðust og það er okkar skoðun að vel hafi tekist að stýra bankanum í gegnum þær krefjandi aðstæður sem heimsfaraldurinn hafði í för með sér. Hreinar tekjur af kjarnastarfsemi, sem eru vaxta- og þóknanatekjur og tekjur af tryggingastarfsemi, hækka um rúm 4% á milli ára. Jafnframt náum við enn frekari árangri við að draga úr kostnaði. Umtalsverðar og jákvæðar breytingar urðu á milli ára hvað varðar virðisbreytingu útlána og fjármunatekjur enda einkenndist uppgjör fyrsta ársfjórðung síðasta árs af gríðarlegri óvissu. Þó vissulega sé enn margt óljóst varðandi leiðina út úr heimsfaraldrinum þá er ástæða til aukinnar bjartsýni nú þegar bólusetningar ganga vel, bæði hér á landi og í mörgum þeirra landa sem skipta ferðaþjónustuna miklu. Það er ánægjulegt að sjá að margir okkar viðskiptavina eru farnir að búa sig undir betri tíma. Á undanförnum árum höfum við lagt höfuðáherslu á að gera þjónustu bankans þægilegri fyrir viðskiptavini. Við leggjum mikið upp úr því að bjóða aðgengilegar stafrænar lausnir sem gera flókna hluti einfalda. Ein af okkar nýjustu lausnum gerir lífeyrismál fólks aðgengileg í Arion appinu. Lausnin fékk nýverið verðlaun á íslensku vefverðlaununum, árlegum verðlaunum Samtaka vefiðnaðarins, fyrir að draga saman á notendavænan hátt flóknar upplýsingar frá mörgum stöðum. Það er ánægjulegt að fá þessa viðurkenningu því við teljum mjög mikilvægt að færa lífeyrismálin nær fólki – bæði ungu fólki sem er að hefja sinn lífeyrissparnað og þeim eldri sem nálgast eftirlaunaaldur. Það er fátt mikilvægara í fjármálum fólks en að skilja og þekkja sín lífeyrismál. Það hefur verið allnokkur breyting á hluthafahópi bankans það sem af er ári. Stórir erlendir hluthafar sem tóku þátt í hlutafjárútboði bankans fyrir tæpum þremur árum hafa farið úr hluthafahópnum og í þeirra stað hafa komið íslenskir fjárfestar. Hluthafar bankans eru í dag rúmlega átta þúsund og eiga íslenskir hluthafar um 90% hlutafjár. Lífeyrissjóðir eiga nær helmings hlut í bankanum og eru aðrir innlendir aðilar eigendur að um 40% hlutafjár. Það er athyglisvert að þótt hlutafjáreign erlendra aðila hafi lækkað í um 10% hlut í bankanum þá eru erlendir hluthafar fimm þúsund talsins og þeir eru því í fjölda talið meirihluti hluthafa bankans.“
Íslenskir bankar Mest lesið Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Atvinnulíf Vekja athygli á innköllun leikfangs Neytendur Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Viðskipti innlent Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Neytendur Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Sjá meira