Árið 2020 var Þjóðhátíðarlaust sökum kórónuveirunnar. Nú þegar ellefu vikur eru til Verslunarmannahelgar eru Eyjamenn að setja sig í stellingar.
„Áætlanir stjórnvalda eru á þá leið að hér verði búið að aflétta öllum samkomutakmörkunum í júlí. Þannig að við sjáum ekkert því til fyrirstöðu að halda Þjóðhátíð eins og við þekkjum hana um Verslunarmannahelgi,“ segir Hörður Örri Grettisson, framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Vestmannaeyja og formaður Þjóðhátíðarnefndar.

„Það er alltaf mjög margt fólk um Verslunarmannahelgina. Eins og ástandið hefur verið þá erum við að reikna með risaþjóðhátíð í ágúst, jafnvel stærri þjóðhátíð en verið hefur hingað til.“
Hörður merkir mikla eftirvæntingu í Eyjum eftir að geta farið aftur niður í Dal eftir hléð í fyrra. Spenna meðal væntanlegra gesta sé líka mikil.
Gæti orðið uppselt einn daginn
„Eftirspurnin sem við verðum vör við er gríðarlega mikil.“
Hörður vill ekki gefa neitt uppi að svo stöddu varðandi þá listamenn sem koma fram. Tilkynnt verði um það á næstunni. Hann lofar einvalaliðið tónlistarfólks og boðar nýtt Þjóðhátíðarlag um mánaðamótin.
Lífið er yndislegt með Hreimi Erni Heimissyni fagnar tuttugu ára afmæli í sumar.
Hörður segir ekki útilokað að það komi að því að uppselt verði á Þjóðhátíð einn daginn. Brekkan hafi verið það þéttsetin á sunnudeginum undanfarin ár og svæðið beri ekki mikið meiri fjölda. En það verði að koma betur í ljós síðar.