Hildur segir að þetta sé stemmingslína til að koma okkur í stuð fyrir bjartari tíma eftir Covid leiðindin, eins og hún orðar það. Það er margt við sjóinn og vatnið sem heillar hönnuðinn
„Við erum auðvitað í miklum tengslum við hann hér heima, hann er endalaus uppspretta sagna og innblásturs. Ég elska líka sundlaugarmenninguna á Íslandi, það munu koma nýir sundbolir frá okkur í sumar sem við erum mjög spenntar fyrir.“
Línan er nú þegar komin í sölu en það sem einkennir flíkurnar eru bjartir litir og prent.
„Snið sem undirstrika kvenlegar línur. Við erum mikið að nota sumarleg og létt efni eða efni sem glitra fallega í sólinni. Skemmtilegar partýflíkur sem hægt er að dressa upp og niður. Við höfum undanfarin ár verið að hanna fyrir mismunandi líkamstýpu svo flestar konur ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Við erum oft að gera flíkur sem fólk skartar við sérstakt tilefni og þá skiptir öllu máli að líða vel.“

Kvennakraftur og góð tónlist
Hildur heldur ekki hefðbundna tískusýningu í ár vegna samkomutakmarkana en heldur þó viðburð á föstudag klukkan frá 17 til 19 í versluninni á Laugarvegi 7 og um klukkan 18 verður þar skemmtilegur viðburður.
„Það verða léttar veitingar og skemmtilegur „girl power“ gjörningur með tónlistarívafi. Við erum með stóran glugga svo fólk getur dreift vel úr sér fyrir utan á þessum Covid tímum. Það verður einnig hægt að skoða nýju línuna á hefðbundnum opnunartíma verslunarinnar og á hilduryeoman.com“
Þó að Covid hafi haft töluverð áhrif á reksturinn, er Hildur samt bjartsýn og þakklát.
Covid hefur haft margvísleg áhrif á okkur, við þurftum til dæmis að blása af sýningar nokkrum sinnum á síðasta ári eins og fleiri félagar okkar í skapandi greinum. Að takast á við hertar samkomutakmarkanir getur einnig verið krefjandi þegar þú ert að hanna samkvæmisfatnað.
„Við erum mjög þakklátar viðskiptavinum okkar sem stóðu þétt við bakið á okkur í gegnum hverja bylgjuna á fætur annari. En nú eru bjartari tímar fram undan, ég var að koma úr bólusetningu og er mjög spennt fyrir sumrinu.“
Dagskrá HönnunarMars má finna HÉR.