Óformleg opnun HönnunarMars verður á Hafnartorgi milli 18-19 í dag en annars eru opnanir og fjör á öllum sýningum HönnunarMars í dag. Þess má geta að öll fagfélög hönnuða og arkitekta standa fyrir sýningum eða viðburðum á HönnunarMars í ár.
„Dagsformið er gott. Það má segja að andleg og líkamleg líðan sé ákveðin samsuða af eftirvæntingu, spennu og gleði. Við höfum í raun hvílt í óvissunni síðan öllu var skellt í lás í fyrra. Það er því óneitanlegur léttir að sjá dagskránna taka á sig þessu fjölbreyttu og spennandi mynd og sjá hátíðina raungerast. Nú birtir til enda fimm daga einstök hönnunarveisla fram undan,“ sagði Þórey Einarsdóttir stjórnandi HönnunarMars þegar fréttastofa náði tali af henni.
Skemmtileg og náttúruleg tenging
„HönnunarMars hefur alltaf verið boðberi bjartsýnni, og það er engin undantekning á því í ár. Gleði og jákvæðni eru því áþreifanleg, það er spenna í loftinu. Það eru ákveðnir rauðir þræðir í dagskránni og við sjáum að það þemu á borð við náttúruna, framtíðina, starfrænar lausir og sjálfbæri koma mjög sterk fram í verkefnunum. Venju samkvæmt er verið að kynna nýjar hugmyndir, hanna nýjar lausir og nýjar leiðir.“
Það er ýmislegt nýtt og spennandi á HönnunarMars í ár, sem haldin er í maí vegna Covid.
„Við erum auðvitað að prufa okkur áfram að halda hátíð í maí en ekki mars eða júní. Studio HönnunarMars, sem varð til á HönnuarMars í maí, sem ákveðið svar við bæði rafrænni og alþjóðlegri miðlun á þeim tímapunkti, tekur á sig nýja mynd á Hafnartorgi. Þar gefst gestum og gangandi tækifæri á að kíkja í heimsókn, skoða fjölbreyttar sýningar, rýna dagskrána og skipuleggja sinn HönnunarMars. Það er hægt að smakka á mars í maí, hönnunarmars kokteil, hitta hönnuði og fanga mómentið með mynd í sérútbúnum HönnunarMars myndakassa. Við lofum innblæstri og við lofum að taka vel á móti öllum.
Í ár er útskriftarsýning LHí á dagskrá HönnuarMars það er skemmtileg og náttúruleg tenging enda nemendur framtíðar þátttakendur í HönnunarMars.
Í anda nýsköpunar og hönnunar hugsunar þá erum við að prufukeyra nokkar nýjar vörur sem vonandi munu líta dagsins ljós á HönnunarMars 2022 meðal annars Hittu hönnuð á HönnunarMars, leiddar hönnunargöngur og margt fleira. Framleiðsla á nýjum verkefnum stíga einnig fram á sjónarsviðið og þar má nefna hlaðvarpsþættina DesignTalksTalks og HönnunarMars út í heim.“

Nýtt hlaðvarp um hönnun
Covid varð ekki aðeins til þess að hátíðinni var frestað fram í maí heldur hafði það líka áhrif á dagskrána í ár, enda eru enn ýmsar takmarkanir í gildi.
„Fjárans veiran heggur skarð í alþjóðlega hluta dagskrár HönnunarMars þar sem erlendir gestir og fjölmiðlar geta ekki komið í eigin persónu í ár.
En eins og einhver sagði „never let a good crisis go to waste“ þá hafa orðið til ný og skemmtileg verkefni sem taka mið af þessum ferðatakmörkunum.
HönnunarMars og sendiráð Íslands í höfuðborgum Norðurlandanna tóku saman höndum og standa fyrir viðburðum í formi hlaðvarpa, sem tekin voru upp í aðdraganda HönnunarMars hátíðarinnar á Íslandi. Sömuleiðis í samstarfi við Icelandair, Íslandsstofu, Bláa lónið, 66°Norður og hönnuði fengu allir erlendir fjölmiðlar veglega gjafakassa með íslenskum vörum sent beint heim að dyrum og að sjálfsögðu með boð á HönnunarMars 2022!
Einn af okkar lykilviðburðum DesignTalks, sem Hlín Helga Guðlaugsdóttir, hönnuður, stýrir árlega í Hörpu, er ekki á dagskrá annað árið í röð. Hins vegar þá eins og flest allir sem standa að viðburðum, höfum við þurft að finna skapandi lausir til að bregðast við breyttum raunveruleika. Í þeim aðstæðum er vart til betra bakland en lausamiðaðir hönnuðir og arkitektar Og þannig varð hlaðvarpsserían DesingTalksTalks – hlaðvarp um hönnun sem varð til ásamt öðrum verkefnum. Það fer í loftið yfir hátíðina.“
Nánar verður fjallað um hlaðvarpið á Vísi síðar í dag en fyrsti þáttur fer í loftið hér á Vísi og á fleiri hlaðvarpsveitum í fyrramálið.

Einstakur arkitektúr
Þórey segir að það sé ljóst að hönnuðir hafi nýtt einstaklega vel þetta skrítna Covid-tímabil síðustu mánuði.
„Því til sönnunar þá munu nú yfir 400 þátttakendur, hönnuðir og arkitektar í Hönnunarmars stíga fram á sjónarsviðið með einstaklega spennandi og áhugaverðar dagskrá sem er bræðingur af af 89 sýningum, verkefnum, hugmyndum , ferlum og fleira.“
HönnunarMars teymið var að koma sér fyrir í Grósku, sem er iðandi af lífi þessa dagana.
„Það er hreinlega eins og við höfum alltaf verið þarna. Arkitektúrin er einstakur og einstaklega góð hljóðvist. Húsið tekur vel utan um mann, svo ekki sé minnst á stærsta lifandi listverkið í formi gróðurhúsaveggs við innganginn sem býður mann velkomin. Auk þess að veita innblástur og er nærandi fyrir líkama og sál. Hugmyndafræðin er frábær og það er virkileg forréttindi að fá að vinna í þessu umhverfi með frábærum nýsköpunar fyrirtækjum, sprotum og svo stöndugum fyrirtækjum. Dóttir mín Andrea sem er sjö ára, kom í heimsókn og fyrsta sem hún sagði „Vá, mamma, er ekki gaman að vinna hérna?“ Það rammar það inn.“
Unnu þrekvirki
Opinberar dagsetningar hátíðarinnar eru 19. - 23. maí en hátíðin breiðir úr sér yfir mánuðinn. Engir stórir og mannmargir viðburðir eru á hátíðinni í ár vegna Covid. Allar sýningar og sýningarstaðir HönnunarMars fylgja gildandi sóttvarnarreglum er varða samkomutakmarkanir og grímuskyldu.
„Hátíðin útvegar öllum sýningarstöðum merkingar þar sem fram koma gildandi sóttvarnarreglur, límmiðar á sprittbrúsa og í samstarfið við 66°Norður fengu þátttakendur einnig grímur.
Að sjálfsögðu brýnum við einnig fyrir þátttendur að fylgja gildandi reglugerð sem gefin er út af yfirvöldum í tengslum við sóttvarnir. Það er okkar upplifun heilt yfir að fólk er ábyrgt en að sjálfsögðu getum við ekki tryggt að allir fari eftir settum reglum. Það getur það enginn.
En við gerum okkar besta að minna á og ég tel að flestir séu orðnir vanir því að sækja menningarviðburði undir þessum kringumstæðum og að fylgja settum reglum.“
Þórey segist vera einstaklega þakklát fyrir fólkið sem stendur með henni að þessu verkefni.
„Teymið á bak við HönnunarMars hefur unnið þrekvikri en þökk sé Höllu Helgadóttur framkvæmdastjóra MHA, Álfrúnu Pálsdóttur, kynningarstjóra, Klöru Rún Ragnarsdóttur, verkefnastjóra dagskrár, Þuru Stínu Kristleifsdóttur, upplifunarhönnuði, auk þeirra Pálu Minny, Karitas Diðriksdóttir, Berglindi Pétursdóttur, Aldísar Pálsdóttur og Einars Egilssonar sem hafa bæst í teymið fyrir hátíð. Einnig þakklæti og bestu þakkir til fjölda þeirra hönnuða og arkitekta sem hafa hvílt í óvissunni með okkur sem bjóða almenningi nú uppá fimm daga sannkallaða veislu fyrir öll skynfærin.“