19. september 2004 klæddist Theódór Elmar Bjarnason KR-treyjunni í leik á móti Fylki í þá Landsbankadeild karla. Þetta er síðasti leikur hans fyrir KR þar til í kvöld.
Theódór Elmar gekk frá samningi sínum við KR í síðustu viku og mun spila fyrsta leikinn sinn með liðinu í kvöld.
KR heimsækir þá KA á Dalvík en leikurinn hefst klukkan 19.15 í kvöld og er annar tveggja leikja í Pepsi Max deild karla í kvöld. Hinn er leikur Víkinga og Skagamanna sem hefst á sama tíma.
Endurkoma Theódórs Elmars er sérstök enda orðinn heill knattspyrnuferill síðan hann klæddist síðast svarthvítu KR-treyjunni.
Það verða nefnilega liðin sextán ár, níu mánuðir og sextán dagar síðan hann spilaði síðast með uppeldisfélaginu sínu í efstu deild á Íslandi. Samtals gerir þetta 201 mánuð og sextán daga.
Theódór Elmar fór fyrst út í atvinnumennsku til Celtic í Skotlandi en hefur síðan spilað í Noregi, í Svíþjóð, í Danmörku, í Tyrklandi og loks í Grikklandi.
Theódór Elmar var aðeins sautján ára gamall þegar hann fór út í atvinnumennsku og snýr nú til baka orðinn 34 ára gamall.
Elmar verður væntanlega í kvöld sá leikmaður þar sem hefur beðið lengst á milli leikja fyrir KR í efstu deild. Metið átti Indriði Sigurðsson.
Indriði var í burtu í 16 ár, 7 mánuði og 14 daga eða frá því að hann lék með KR út 1999 tímabilið þar til að hann snéri aftur sumarið 2016.
Þjálfari Elmars í kvöld, Rúnar Kristinsson, beið líka mjög lengi eftir því að klæðast KR-treyjunni. Rúnar fór út í atvinnumennsku eftir 1994 tímabilið en kom aftur heim sumarið 2007. Alls liðu tólf ár og átta mánuðir milli deildarleikja hans fyrir KR.

Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.