Íslenski boltinn

„Förum inn í daginn til þess að njóta“

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Agla María fagnar titlinum um síðustu helgi. Hún mun fagna meira í kvöld.
Agla María fagnar titlinum um síðustu helgi. Hún mun fagna meira í kvöld. vísir/Anton

Breiðablik verður með mikla sigurhátíð í kvöld er liðið tekur á móti Íslandsmeistaraskildinum eftir leik sinn við FH.

Margir voru bjartsýnir á að þetta yrði hreinn úrslitaleikur um titilinn en þær vonir fuku út um veður og vind er FH steinlá á heimavelli sínum um síðustu helgi gegn Þrótti. Blikastúlkur gengu á lagið, lögðu Stjörnuna og tryggðu sér titilinn.

„Það er tilhlökkun. Ég viðurkenni að það væri allt öðruvísi að fara inn í þennan leik ef þetta væri úrslitaleikur um titilinn. Núna förum við inn í daginn til þess að njóta,“ segir Agla María Albertsdóttir, fyrirliði Breiðabliks, en það þýðir samt ekki að það eigi að gefa einhvern afslátt í leiknum.

„Auðvitað viljum við að sjálfsögðu vinna og við erum ekki að fara að leika okkur. Leikir spilast allt öðruvísi þegar það er allt undir. Ég held að þessi leikur verði opnari og skemmtilegri. Það verður bara gaman.“

Gleðin verður við völd á Kópavogsvelli í kvöld.vísir/Anton

FH ætlar að koma í Kópavoginn til þess að skemma sigurhátíðina en Blikar ætla að sama skapi að sýna FH að þær séu verðugir meistarar.

„Það er engin breyting á neinu hjá okkur. Við förum inn í leikinn til þess að vinna. Þetta er okkar heimavöllur og fullt af fólki vonandi að mæta. Við viljum bjóða því fólki upp á flotta frammistöðu og klára leikinn með stæl.“

Breiðablik var að vinna titilinn þriðja árið í röð og Agla er ánægð með liðið í sumar.

„Þetta hefur verið langt tímabil og við höfum þurft að hafa mikið fyrir þessu. Við höfum tapað leikjum og það hafa verið sveiflur í frammistöðu. Heilt yfir höfum við sýnt mikla seiglu. Sama hvernig hefur gengið þá höfum við haft mikla trú á verkefninu,“ segir fyrirliðinn en gríðarlega miklar breytingar urðu á liðinu milli tímabila og því er uppskeran að mörgu leyti sætari núna.

„Ég hafði alltaf trú á þessu þó svo það væru breytingar og þetta yrði krefjandi. Mér fannst þetta snúast um hvort við næðum að slípa þetta saman og hvort ungu leikmennirnir næðu að sýna hversu góðar þær væru orðnar. Þetta gekk allt upp. Þær voru frábærar. Nýju leikmennirnir komu sterkir inn og þetta small allt saman.“

Leikurinn hefst klukkan 18.00 og er í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×