Efstu kylfingar gærdagsins hefja brátt keppni og þurfa að vinna upp forskot Morikawa sem er orðinn efstur eftir að hafa leikið á sex höggum undir pari í dag.
Morikawa var hársbreidd frá því að jafna vallarmetið á Royal St George vellinum, sem er 63 högg, en lokapúttið hans í dag fór naumlega ekki ofan í. Hann fékk alls sjö fugla og einn skolla á hringnum en paraði tíu holur.
So close!
— The Open (@TheOpen) July 16, 2021
No birdie at the last for Collin Morikawa but it's still a fantastic 64
See if anyone can catch him here https://t.co/xYY44zAFs3#TheOpen pic.twitter.com/eaMEEdaRuL
Morikawa er nú samtals á -9 höggum, þremur höggum á undan Suður-Afríkumönnunum Daniel Van Tonder og Louis Oosthuizen.
Oosthuizen, og þeir Jordan Pieth og Brian Harman sem léku á -5 höggum í gær, eiga hins vegar eftir að hefja leik í dag líkt og margir fleiri.
Hinn 25 ára gamli Will Zalatoris hefur hins vegar neyðst til að hætta keppni vegna meiðsla. Zalatoris varð í 2. sæti á Opna bandaríska mótinu í apríl en hann lék á höggi undir pari í gær.
We wish a speedy recovery to @WillZalatoris, who has withdrawn from The 149th Open due to injury #TheOpen pic.twitter.com/OWmV7EBpci
— The Open (@TheOpen) July 16, 2021
Bein útsending frá mótinu er á Stöð 2 Golf en útsendingartíma má finna hér. Mótinu lýkur á sunnudag.

Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum. Helgarpassa að Stöð 2 Golf má kaupa á kerfum Vodafone.