Sigríður Hrönn Gunnarsdóttir, eða Sigga Hrönn eins og hún er oftast kölluð, stal senunni með vægast sagt hressandi ísbrjóti í fyrsta þættinum.
Sigga Hrönn var pöruð við málarameistarann Ágúst Þór Guðmundsson sem oftast er kallaður Gústi.
Eins og flestir tengja við getur verið stressandi að hitta bláókunnuga manneskju í fyrsta skipti á stefnumóti og stundum flókið að byrja samræðurnar.
Hér byrjar stefnumótið á almennum, kurteisislegum spurningum um búsetu sem taka óvænta beygju.
Þó svo að ekki hafi kviknað á rómantískum blossum þetta kvöld voru þau bæði ánægð með reynsluna sem og félagsskapinn.
Hrós eru yfirleitt kærkomin, hvernig sem aðstæður eru, og þá sérstaklega í svo óvenjulegum aðstæðum eins og þessum.
Sigga Hrönn og Gústi geisluðu bæði af einlægni eins og sjá má hér fyrir neðan.
Samkvæmt nýjustu upplýsingum eru bæði Sigga Hrönn og Gústi einhleyp og í leit að ástinni og auðvitað rétta dansfélaganum.
Fyrsta blikið eru stefnumóta- og raunveruleikaþættir sem sýndir eru á Stöð 2.
Í hverjum þættir eru kynntir til leiks fjórir einstaklingar sem áhorfendur fá að kynnast í gegnum sófaspjall sem og spjall við aðstandendur. Sýnt er frá spennunni fyrir stefnumótið og auðvitað stefnumótinu sjálfu sem gerist á veitingastaðnum Monkeys í miðbæ Reykjavíkur.
Þættirnir eru sjö talsins og eru á dagskrá Stöðvar 2 á föstudagskvöldum klukkan 18:55 og koma í kjölfarið á Stöð 2+. Hægt er að kaupa áskrift að Stöð 2+ hér.