Par 1

Annar þáttur Fyrsta bliksins verður sýndur á Stöð 2 í kvöld klukkan 18:55. Í þættinum munu áhorfendur fá að kynnast fjórum einstaklingum og fylgja þeim á blind stefnumót.

Sjómaðurinn Kjartan Már Kárason hittir fyrir háskólanemann Söndru Sif Agnarsdóttur. Bæði eru þau alin upp úti á landi og lærðu snemma að vinna og redda sér.
Samkvæmt aðstandendum þeirra eiga þau það einnig sameiginlegt að vera hrókar alls fagnaðar og finnast gaman að djamma.
Par 2

Söngfuglarnir Óli Jón Gunnarsson og Erla Ruth Möller eru bæði að norðan og 33 ára gömul. Á stefnumótinu komast þau að því að þau eiga mun fleira sameiginlegt en aldur og æskustöðvar.

Samkvæmt aðstandendum Óla og Erlu eru þau bæði hálfgerðir tölvunördar og með mikið keppnisskap.
Það verður spennandi að sjá hvort að kvikni á einhverjum ástarblossum í kvöld en hægt er að sjá sýnishorn úr þættinum hér fyrir neðan.
Fyrir áhugasama og einlæga Fyrsta bliks aðdáendur er hægt að fylgjast með, og jafnvel sjá skemmtilegt aukaefni, á Instagramsíðu Fyrsta bliksins.
Fyrsta blikið eru stefnumóta- og raunveruleikaþættir sem sýndir eru á Stöð 2.
Í hverjum þættir eru kynntir til leiks fjórir einstaklingar sem áhorfendur fá að kynnast í gegnum sófaspjall sem og spjall við aðstandendur. Sýnt er frá spennunni fyrir stefnumótið og auðvitað stefnumótinu sjálfu sem gerist á veitingastaðnum Monkeys í miðbæ Reykjavíkur.
Þættirnir eru sjö talsins og eru á dagskrá Stöðvar 2 á föstudagskvöldum klukkan 18:55 og koma í kjölfarið á Stöð 2+. Hægt er að kaupa áskrift að Stöð 2+ hér.