Tímabilið búið hjá Arnóri Borg eftir aðgerð í London Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. september 2021 15:00 Arnór Borg Guðjohnsen hefur ekki spilað með Fylki í Pepsi Max deildinni síðan í ágúst. Vísir/Vilhelm Arnór Borg Guðjohnsen mun ekki geta hjálpað Fylkismönnum að halda sæti sínu í Pepsi Max deildinni í haust.
Arnór Borg hefur verið að glíma við meiðsli í sumar og hefur aðeins 11 leikir og 40 prósent mínútna í boði hjá liðinu í Pepsi Max deildinni. Arnór staðfesti það við Fótbolta.net að hann fór á dögunum til London þar sem kom í ljós að hann var kviðslitinn bæði hægra megin og vinstra megin í náranum. Arnór Borg fór í aðgerð í London vegna langvarandi meiðsla https://t.co/9jjehhWeOo— Fótbolti.net (@Fotboltinet) September 15, 2021 Arnór sagði ennfremur frá því að hann hafi verið að glíma við þetta kviðslit síðan í apríl eða allt tímabilið. Endurhæfingin eftir aðgerðina mun taka um einn mánuð sem þýðir að tímabilið er búið hjá Arnóri Borg sem heldur upp á 21 árs afmælið sitt á morgun. Arnór Borg skoraði eitt mark í þessum ellefu deildarleikjum í sumar en hann spilaði síðast með liðinu í ágúst. Arnór missir ekki aðeins af síðustu tveimur umferðum Pepsi Max deildarinnar því hann verður heldur ekki með Fylki í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins eða þá í fleiri bikarleikjum komist Árbæjarliðið áfram. Fylkismenn hafa ekki skorað í síðustu fjórum deildarleikjum og aðeins eitt mark samanlagt í átta leikjum undanfarna tvo mánuði.
Pepsi Max-deild karla Fylkir Mest lesið Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Enski boltinn Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Spánn - Belgía | Hverjir ætla að vaða í Frakka? Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Fleiri fréttir Valskonur enduðu sigurgöngu Stjörnunnar Sjáðu ótrúlega fimmu Ídu Marínar og Fram vinna meistarana Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Árni Vilhjálms í Stjörnuna Uppgjör: Þór/KA - Grindavík/Njarðvík 1-0. Margrét með sigurmarkið í upphafi leiks Botnlið Fram vann óvæntan sigur á toppliði Blika Eyjakonur með fyrsta sigurinn í tvo mánuði Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Elías Már sárþjáður og fór af velli Tók upp hanskann fyrir Sigurpál: „Gerir það sem markmenn KR eiga að gera“ Segir að Ungverjarnir hafi verið óheppnir að fá Víking í drættinum Sjáðu enn eitt markið hjá Kennie og Stefan koma Keflavík í efri hlutann Uppgjörið: Keflavík - Fram 1-1 | Heimamenn upp í efri hlutann Amin Cosic orðinn leikmaður Noregsmeistaranna Fór betur en áhorfðist hjá Aroni Snæ Með sitt eigið HM í Bestu deildinni Þór yngri en þegar báðir bræður hans skoruðu sitt fyrsta mark Alex Freyr: „Það er kominn hundur í menn” Völsungsliðin skoruðu sex mörk en fengu bara eitt stig Uppgjörið: ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri Uppgjörið: ÍA – Breiðablik 1-2 | Endurkomusigur Blika sem spilltu gleðinni á Akranesi Uppgjörið: FH - Stjarnan 2-2 | Jafnt í Krikanum Hafa ekki unnið nágrannana hinum megin við hraunið í þrjú ár Fyrsti markvörðurinn til að skora utan af velli í 48 ár Sjáðu skrautlegu mörkin fyrir norðan og dramatíkina í Víkinni Sumarmótin: Æfir út í dómarann þrátt fyrir sigur Sjá meira