Íslenski boltinn

Kvaddi Val og sló í gegn eftir full­yrðingar um lé­legt hugar­far

Sindri Sverrisson skrifar
Mattías Kjeld mun spila undir stjórn Óskars Hrafns Þorvaldssonar hjá KR á næstu leiktíð.
Mattías Kjeld mun spila undir stjórn Óskars Hrafns Þorvaldssonar hjá KR á næstu leiktíð. Mynd:KR

Hinn 17 ára gamli Mattías Kjeld hefur nú útskýrt af hverju hann yfirgaf uppeldisfélagið sitt Val í vor sem endaði með því að hann sló í gegn hjá Gróttu og var keyptur til KR. Hann fékk þau skilaboð hjá Val að hugarfarið væri ekki nógu gott og að leikmenn vildu ekki hafa hann í liðinu.

Mattías greinir frá þessu í viðtali við Fótbolta.net í dag en KR tilkynnti um kaupin á honum í lok september.

Eflaust hefur stuðningsmönnum Vals sárnað að sjá þar uppalinn Valsara ganga til liðs við erkifjendurna en KR-ingar voru fljótir til eftir að hafa séð Mattías skora tíu mörk fyrir Gróttu í Lengjudeildinni í sumar og festu kaup á þessum efnilega unglingalandsliðsmanni.

Mattías segist hafa viljað vera áfram hjá Val og þyki vænt um félagið eftir að hafa verið þar síðan í 8. flokki.

„Þá sagði hann takk fyrir þetta og við fundum lið sem tók vel á móti mér“

Með ráðningu á Hermanni Hreiðarssyni og Chris Brazell, og breyttri stefnu félagsins varðandi það að gefa ungum leikmönnum meira pláss, bjóst Mattías við því að fá hlutverk í meistaraflokki á leiktíðinni sem nú er að ljúka. Umboðsmaður hans fundaði því með Gareth Owen, þáverandi yfirmanni knattspyrnumála sem nú hefur látið af störfum, en skilaboðin af þeim fundi voru afar neikvæð að sögn Mattíasar. Hann fékk þó ekki að vita af þessu fyrr en eftir nýafstaðið tímabil með Gróttu.

„Hann [Owen] segir um mig að ég sé ekki með nógu gott hugarfar til að verða fótboltamaður, leikmennirnir vilji ekki hafa mig áfram og eitthvað svoleiðis. Þá sagði hann [umboðsmaður Mattíasar] takk fyrir þetta og við fundum lið sem tók vel á móti mér,“ sagði Mattías.

Ber ekki kala til Vals

Mattías kveðst þó ekki bera neinn kala til Vals eftir þetta og að hann hafi fengið afsökunarbeiðni frá Valsmönnum.

„Ég átti mjög gott samtal við stjórn Vals eftir tímabilið í ár og þeir báðust afsökunar. Þeir vildu meina að þetta hefði frekar verið stjórnin sem var á undan og óskuðu mér alls hins besta. Ég hef þannig séð ekkert á móti Val,“ sagði Mattías við Fótbolta.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×