Viðurkennir að hafa ekki innsiglað kjörseðla og ber fyrir sig hefð Vésteinn Örn Pétursson og Óttar Kolbeinsson Proppé skrifa 26. september 2021 21:23 Ingi Tryggvason, formaður yfirkjörstjórnar, og Magnús Davíð Norðdahl, sem leiddi lista Pírata í Norðvesturkjördæmi. dómsmálaráðuneytið/aðsend Formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi segir að kjörgögn hafi ekki verið innsigluð að talningu lokinni. Magnús Davíð Norðdahl, oddviti Pírata í kjördæminu, segir trúverðugleika kosninganna engan og segir einu færu leiðina vera að kosið verði aftur í kjördæminu. Magnús hefur gagnrýnt frágang kjörstjórnar í kjördæminu á kjörgögnum, sem virðist ekki í samræmi við lög, og furðar sig á ósamræmi sem kom fram í fjölda ógildra og auðra atkvæða milli fyrri talningar og endurtalningar. Eftir endurtalninguna hliðruðust nokkur atkvæði til milli flokka sem komu af stað mikilli hringekju við útdeilingu jöfnunarþingsæta í öllum kjördæmum landsins nema Norðausturkjördæmi. „Hvernig eiga kjósendur í þessu landi að treysta lýðræðislegu ferli þegar kjörgögn eru ekki innsigluð eftir talningu í morgun, umboðsmenn lista ekki látnir vita af endurtalningu atkvæða,“ spyr Magnús á Facebook-síðu sinni. Hann segir að kjörgögnin hafi verið geymd óinnsigluð í opnum sal Hótels Borgar í Borgarnesi í 6 klukkustundir milli talninga á meðan fólk fór heim. Það hafi til dæmis verið gestir á hótelinu. „Trúverðugleiki talningarinnar í Norðvesturkjördæmi er algjörlega farinn og þar með trúverðugleiki kosninganna sjálfra,“ segir hann. „Eina leiðin til að leysa úr þessu er að endurtaka kosningarnar í Norðvesturkjördæmi og tryggja gagnsæi og að farið sé eftir lögum og reglum. Það er sanngjörn og réttmæt krafa okkar frambjóðenda og ekki síst kjósenda í kjördæminu.“ Innsigluðu kjörgögn ekki um leið Í samtali við fréttastofu segir Ingi Tryggvason, formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi, að rétt sé að kjörgögn hafi ekki verið innsigluð um leið. Hann vísar gagnrýninni þó á bug og telur ekki tilefni til að bregðast sérstaklega við henni. Kjörgögnin hafi verið geymd inni í læstum sal á hótelinu. „Þetta er bara alveg sama skipulag og hefur verið mjög lengi,“ segir hann. En er þetta rétt, að þau hafi ekki verið innsigluð og skilin eftir? „Já, ekki innsigluð. Það hefur aldrei verið gert. Þau eru bara skilin eftir og læst inn í salinn. Svo förum við heim og hvílum okkur í smá tíma og förum aftur á staðinn. Þetta er bara vinnulag sem er búið að vera eins lengi og ég veit. Það er ekkert innsiglað, það er engin aðstaða til að innsigla þetta. Menn ganga ekkert alveg frá þessu. Auðvitað væri það hægt, það væri náttúrulega hægt að klára þetta en þá væru menn að bara fram á miðjan dag og væru þá kannski ekkert búnir að sofa í tvo sólarhringa.“ Þannig að þetta er rétt hjá honum, en þú vísar því á bug að það sé eitthvað athugavert við þetta? „Já, já. Eins og ég segi, þetta hefur bara tíðkast og er bara venjubundið. Það hafa aldrei verið nein vandamál í sambandi við þetta.“ Vísar til skýrra ákvæða kosningalaga Kristín Edwald, formaður Landskjörstjórnar, sagðist ekki geta tjáð sig um málið þegar fréttastofa hafði samband við hana. Almennt sagði hún þó að kosningalög væru skýr um þetta efni, og vísaði sérstaklega til 104. greinar þeirra, sem tekur til þess hvað gera skuli að talningu atkvæða lokinni. Í annarri málsgrein ákvæðisins segir: „Þá skal yfirkjörstjórn setja alla notaða kjörseðla undir innsigli og skal gildum og ógildum kjörseðlum haldið sér. Kjörseðlana skal geyma þar til Alþingi hefur úrskurðað um gildi kosninganna, sbr. 120. gr., enda sé þeirra eigi þörf vegna kæru sem beint hefur verið til lögreglustjóra. Að því búnu skal eyða kjörseðlunum og skrá yfirlýsingu um það í gerðabók yfirkjörstjórnar.“ Norðvesturkjördæmi Alþingiskosningar 2021 Endurtalning í Norðvesturkjördæmi Tengdar fréttir „Hryllileg rússíbanareið“ „Þetta er hryllileg rússíbanareið sem þetta jöfnunarsætakerfi býr til,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, sem nú er orðinn jöfnunarþingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, eftir að endurtalning atkvæða í Norðvesturkjördæmi breytti stöðunni varðandi jöfnunarþingmenn víða um land. 26. september 2021 19:59 „Þetta voru góðir níu tímar“ Hljóðið var misgott í þeim sem fengu nú fyrir skemmstu þær fréttir að þeir væru dottnir út sem jöfnunarþingmenn flokka sinna eftir endurtalninguna í Norðvesturkjördæmi. Endurtalningin leiddi í ljós mistök í fyrri tölum sem urðu til þess að jöfnunarsæti í fimm kjördæmum breyttust. 26. september 2021 19:47 Vinstri græn biðja um endurtalningu í Suðurkjördæmi Yfirkjörstjórn Suðurkjördæmis hefur borist beiðni um endurtalningu atkvæða í kjördæminu. Mjótt var á mununum í kjördæminu og nokkur atkvæði til eða frá geta breytt stöðunni, líkt og endurtalning dagsins í Norðvesturkjördæmi hefur sýnt. 26. september 2021 19:18 Konur ekki lengur í meirihluta á Alþingi eftir endurtalningu Þegar lokatölur úr öllum kjördæmum í Alþingiskosningunum lágu fyrir í morgun var útlit fyrir að konur yrðu í meirihluta á Alþingi, í fyrsta sinn í sögunni. Eftir að endurtalning í Norðvesturkjördæmi breytti röðun jöfnunarþingmanna er sá meirihluti hins vegar að engu orðinn. 26. september 2021 18:47 Mest lesið Ísland verður ekki með í Eurovision Innlent Gummi Emil tekinn í skýrslutöku lögreglu Innlent Krafðist sérlega þungrar refsingar yfir Margréti Höllu Innlent Sæði með krabbameinsvaldandi genagalla selt til Íslands Innlent Ósáttur með ákvörðunina: „Mér finnst Rúv verða aðeins leiðinlegra fyrir vikið“ Innlent Varar Íslendinga við værukærð eftir að „Pólverjar lögleiddu pyntingar“ Innlent Vörubifreið ekið á undirstöður Breiðholtsbrúar Innlent Úlfar þögull sem gröfin Innlent Fjögur börn á Íslandi getin með sæði mannsins Innlent Vilja skoða samfélagsmiðla íslenskra ferðamanna Erlent Fleiri fréttir „Þá sýndu stjórnvöld kjark“ Fjögur börn á Íslandi getin með sæði mannsins Útvarp Sólheimar er vinsæl útvarpsstöð Landsmenn sáttir: „Þetta eru bara glæpahundar“ Varar Íslendinga við værukærð eftir að „Pólverjar lögleiddu pyntingar“ Breiðholtsbrautin opin á ný Áfram gert ráð fyrir gosi þrátt fyrir litla skjálftavirkni Reyndu að kveikja eld í bílastæðahúsi Ekkert Eurovision og hreindýr sem heldur að það sé hundur Til skoðunar hvort ljósin hafi verið græn Ósáttur með ákvörðunina: „Mér finnst Rúv verða aðeins leiðinlegra fyrir vikið“ Maðurinn handtekinn aftur í tengslum við mannslátið Milduðu dóm konu sem braut á drengjum og einn vildi ekki refsa Ísland meðal ríkja sem vilja endurskoða túlkun Mannréttindasáttmálans Ísland verður ekki með í Eurovision Selfoss dreginn til hafnar á Hjaltlandseyjum Reiknar með fljótri og góðri ákvörðun fyrir Ísland Óska eftir vitnum að banaslysinu á Vesturlandsvegi Kalla eftir sérstakri umræðu um málefni skólameistara og framhaldsskóla Tölvuárás á kerfi Grundarheimilanna Úlfar þögull sem gröfin Vörubifreið ekið á undirstöður Breiðholtsbrúar Starfsmenn stefna Hval í samvinnu við fyrirtækið Viðgerð á Seyðisfjarðarlínunni muni taka tíma Hvalveiðimenn ætla í hart og örlög Íslands í Eurovision ráðast í dag Róbert vill leiða lista Viðreisnar í borginni Miðflokkurinn ekki undirritað siðareglur og mæting þingmanna sögð frjálsleg Handtekinn á Akranesi grunaður um nauðgun Slökkviliðsstjóri fer í fullt starf hjá almannavarnanefnd Fer ekki aftur fram fyrir Samfylkinguna Sjá meira
Magnús hefur gagnrýnt frágang kjörstjórnar í kjördæminu á kjörgögnum, sem virðist ekki í samræmi við lög, og furðar sig á ósamræmi sem kom fram í fjölda ógildra og auðra atkvæða milli fyrri talningar og endurtalningar. Eftir endurtalninguna hliðruðust nokkur atkvæði til milli flokka sem komu af stað mikilli hringekju við útdeilingu jöfnunarþingsæta í öllum kjördæmum landsins nema Norðausturkjördæmi. „Hvernig eiga kjósendur í þessu landi að treysta lýðræðislegu ferli þegar kjörgögn eru ekki innsigluð eftir talningu í morgun, umboðsmenn lista ekki látnir vita af endurtalningu atkvæða,“ spyr Magnús á Facebook-síðu sinni. Hann segir að kjörgögnin hafi verið geymd óinnsigluð í opnum sal Hótels Borgar í Borgarnesi í 6 klukkustundir milli talninga á meðan fólk fór heim. Það hafi til dæmis verið gestir á hótelinu. „Trúverðugleiki talningarinnar í Norðvesturkjördæmi er algjörlega farinn og þar með trúverðugleiki kosninganna sjálfra,“ segir hann. „Eina leiðin til að leysa úr þessu er að endurtaka kosningarnar í Norðvesturkjördæmi og tryggja gagnsæi og að farið sé eftir lögum og reglum. Það er sanngjörn og réttmæt krafa okkar frambjóðenda og ekki síst kjósenda í kjördæminu.“ Innsigluðu kjörgögn ekki um leið Í samtali við fréttastofu segir Ingi Tryggvason, formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi, að rétt sé að kjörgögn hafi ekki verið innsigluð um leið. Hann vísar gagnrýninni þó á bug og telur ekki tilefni til að bregðast sérstaklega við henni. Kjörgögnin hafi verið geymd inni í læstum sal á hótelinu. „Þetta er bara alveg sama skipulag og hefur verið mjög lengi,“ segir hann. En er þetta rétt, að þau hafi ekki verið innsigluð og skilin eftir? „Já, ekki innsigluð. Það hefur aldrei verið gert. Þau eru bara skilin eftir og læst inn í salinn. Svo förum við heim og hvílum okkur í smá tíma og förum aftur á staðinn. Þetta er bara vinnulag sem er búið að vera eins lengi og ég veit. Það er ekkert innsiglað, það er engin aðstaða til að innsigla þetta. Menn ganga ekkert alveg frá þessu. Auðvitað væri það hægt, það væri náttúrulega hægt að klára þetta en þá væru menn að bara fram á miðjan dag og væru þá kannski ekkert búnir að sofa í tvo sólarhringa.“ Þannig að þetta er rétt hjá honum, en þú vísar því á bug að það sé eitthvað athugavert við þetta? „Já, já. Eins og ég segi, þetta hefur bara tíðkast og er bara venjubundið. Það hafa aldrei verið nein vandamál í sambandi við þetta.“ Vísar til skýrra ákvæða kosningalaga Kristín Edwald, formaður Landskjörstjórnar, sagðist ekki geta tjáð sig um málið þegar fréttastofa hafði samband við hana. Almennt sagði hún þó að kosningalög væru skýr um þetta efni, og vísaði sérstaklega til 104. greinar þeirra, sem tekur til þess hvað gera skuli að talningu atkvæða lokinni. Í annarri málsgrein ákvæðisins segir: „Þá skal yfirkjörstjórn setja alla notaða kjörseðla undir innsigli og skal gildum og ógildum kjörseðlum haldið sér. Kjörseðlana skal geyma þar til Alþingi hefur úrskurðað um gildi kosninganna, sbr. 120. gr., enda sé þeirra eigi þörf vegna kæru sem beint hefur verið til lögreglustjóra. Að því búnu skal eyða kjörseðlunum og skrá yfirlýsingu um það í gerðabók yfirkjörstjórnar.“
„Þá skal yfirkjörstjórn setja alla notaða kjörseðla undir innsigli og skal gildum og ógildum kjörseðlum haldið sér. Kjörseðlana skal geyma þar til Alþingi hefur úrskurðað um gildi kosninganna, sbr. 120. gr., enda sé þeirra eigi þörf vegna kæru sem beint hefur verið til lögreglustjóra. Að því búnu skal eyða kjörseðlunum og skrá yfirlýsingu um það í gerðabók yfirkjörstjórnar.“
Norðvesturkjördæmi Alþingiskosningar 2021 Endurtalning í Norðvesturkjördæmi Tengdar fréttir „Hryllileg rússíbanareið“ „Þetta er hryllileg rússíbanareið sem þetta jöfnunarsætakerfi býr til,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, sem nú er orðinn jöfnunarþingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, eftir að endurtalning atkvæða í Norðvesturkjördæmi breytti stöðunni varðandi jöfnunarþingmenn víða um land. 26. september 2021 19:59 „Þetta voru góðir níu tímar“ Hljóðið var misgott í þeim sem fengu nú fyrir skemmstu þær fréttir að þeir væru dottnir út sem jöfnunarþingmenn flokka sinna eftir endurtalninguna í Norðvesturkjördæmi. Endurtalningin leiddi í ljós mistök í fyrri tölum sem urðu til þess að jöfnunarsæti í fimm kjördæmum breyttust. 26. september 2021 19:47 Vinstri græn biðja um endurtalningu í Suðurkjördæmi Yfirkjörstjórn Suðurkjördæmis hefur borist beiðni um endurtalningu atkvæða í kjördæminu. Mjótt var á mununum í kjördæminu og nokkur atkvæði til eða frá geta breytt stöðunni, líkt og endurtalning dagsins í Norðvesturkjördæmi hefur sýnt. 26. september 2021 19:18 Konur ekki lengur í meirihluta á Alþingi eftir endurtalningu Þegar lokatölur úr öllum kjördæmum í Alþingiskosningunum lágu fyrir í morgun var útlit fyrir að konur yrðu í meirihluta á Alþingi, í fyrsta sinn í sögunni. Eftir að endurtalning í Norðvesturkjördæmi breytti röðun jöfnunarþingmanna er sá meirihluti hins vegar að engu orðinn. 26. september 2021 18:47 Mest lesið Ísland verður ekki með í Eurovision Innlent Gummi Emil tekinn í skýrslutöku lögreglu Innlent Krafðist sérlega þungrar refsingar yfir Margréti Höllu Innlent Sæði með krabbameinsvaldandi genagalla selt til Íslands Innlent Ósáttur með ákvörðunina: „Mér finnst Rúv verða aðeins leiðinlegra fyrir vikið“ Innlent Varar Íslendinga við værukærð eftir að „Pólverjar lögleiddu pyntingar“ Innlent Vörubifreið ekið á undirstöður Breiðholtsbrúar Innlent Úlfar þögull sem gröfin Innlent Fjögur börn á Íslandi getin með sæði mannsins Innlent Vilja skoða samfélagsmiðla íslenskra ferðamanna Erlent Fleiri fréttir „Þá sýndu stjórnvöld kjark“ Fjögur börn á Íslandi getin með sæði mannsins Útvarp Sólheimar er vinsæl útvarpsstöð Landsmenn sáttir: „Þetta eru bara glæpahundar“ Varar Íslendinga við værukærð eftir að „Pólverjar lögleiddu pyntingar“ Breiðholtsbrautin opin á ný Áfram gert ráð fyrir gosi þrátt fyrir litla skjálftavirkni Reyndu að kveikja eld í bílastæðahúsi Ekkert Eurovision og hreindýr sem heldur að það sé hundur Til skoðunar hvort ljósin hafi verið græn Ósáttur með ákvörðunina: „Mér finnst Rúv verða aðeins leiðinlegra fyrir vikið“ Maðurinn handtekinn aftur í tengslum við mannslátið Milduðu dóm konu sem braut á drengjum og einn vildi ekki refsa Ísland meðal ríkja sem vilja endurskoða túlkun Mannréttindasáttmálans Ísland verður ekki með í Eurovision Selfoss dreginn til hafnar á Hjaltlandseyjum Reiknar með fljótri og góðri ákvörðun fyrir Ísland Óska eftir vitnum að banaslysinu á Vesturlandsvegi Kalla eftir sérstakri umræðu um málefni skólameistara og framhaldsskóla Tölvuárás á kerfi Grundarheimilanna Úlfar þögull sem gröfin Vörubifreið ekið á undirstöður Breiðholtsbrúar Starfsmenn stefna Hval í samvinnu við fyrirtækið Viðgerð á Seyðisfjarðarlínunni muni taka tíma Hvalveiðimenn ætla í hart og örlög Íslands í Eurovision ráðast í dag Róbert vill leiða lista Viðreisnar í borginni Miðflokkurinn ekki undirritað siðareglur og mæting þingmanna sögð frjálsleg Handtekinn á Akranesi grunaður um nauðgun Slökkviliðsstjóri fer í fullt starf hjá almannavarnanefnd Fer ekki aftur fram fyrir Samfylkinguna Sjá meira
„Hryllileg rússíbanareið“ „Þetta er hryllileg rússíbanareið sem þetta jöfnunarsætakerfi býr til,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, sem nú er orðinn jöfnunarþingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, eftir að endurtalning atkvæða í Norðvesturkjördæmi breytti stöðunni varðandi jöfnunarþingmenn víða um land. 26. september 2021 19:59
„Þetta voru góðir níu tímar“ Hljóðið var misgott í þeim sem fengu nú fyrir skemmstu þær fréttir að þeir væru dottnir út sem jöfnunarþingmenn flokka sinna eftir endurtalninguna í Norðvesturkjördæmi. Endurtalningin leiddi í ljós mistök í fyrri tölum sem urðu til þess að jöfnunarsæti í fimm kjördæmum breyttust. 26. september 2021 19:47
Vinstri græn biðja um endurtalningu í Suðurkjördæmi Yfirkjörstjórn Suðurkjördæmis hefur borist beiðni um endurtalningu atkvæða í kjördæminu. Mjótt var á mununum í kjördæminu og nokkur atkvæði til eða frá geta breytt stöðunni, líkt og endurtalning dagsins í Norðvesturkjördæmi hefur sýnt. 26. september 2021 19:18
Konur ekki lengur í meirihluta á Alþingi eftir endurtalningu Þegar lokatölur úr öllum kjördæmum í Alþingiskosningunum lágu fyrir í morgun var útlit fyrir að konur yrðu í meirihluta á Alþingi, í fyrsta sinn í sögunni. Eftir að endurtalning í Norðvesturkjördæmi breytti röðun jöfnunarþingmanna er sá meirihluti hins vegar að engu orðinn. 26. september 2021 18:47