Innlent

Hvítur Scheffer og franskur fjárhundur

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Ingunn Birta og Meiko á hundasýningunni í Ölfusi.
Ingunn Birta og Meiko á hundasýningunni í Ölfusi. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Hundarnir Frídó og Meiko eiga ekki annað sameiginlegt en að vera hundar því þeir eru mjög ólíkir. Annar er hvítur Scheffer og hinn er franskur fjárhundur með mikinn felld. Báðir vöktu þeir mikla athygli á hundasýningu, sem þeir tóku þátt í.

Hundasýningin fór nýlega fram í reiðhöllinni á Sunnuhvoli í Ölfusi en þar var fjöldi hunda af ýmsum tegundum skráðir til leiks. Sýningin var deildarsýning Fjár- og hjarðhundadeildar Hundaræktarfélags Íslands.

Hundurinn Frídó tuttugu mánaða var að taka þátt í annarri sýningunni sinni en hann er franskur fjárhundur, sem eru miklir feldhundar eins og sést. Ásta Gísladóttir er eigandi og ræktandi Frídós.

„Já, þeir eru mjög fallegir, feldurinn gerir rosalega mikið fyrir þá en maður þarf að greiða svolítið, það þarf að greiða, baða og blása en það er alveg þess virði, ofsalega skemmtilegir,“ segir Ásta.

Það er mikill leikur í Frídó en hann er svo stór að hann er eins og kálfur þegar hann stekkur upp á fólk.

Frídó með eigendum og ræktendum sínum en hann er franskur fjárhundur með mikinn loðfelld.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Hvítur Scheffer vakti líka mikla athygli á hundasýningunni en það er mjög lítið um hvíta Scheffera á Íslandi. Hundurinn heitir Meiko og er átta ára gamall. Hjördís Ásgeirsdóttir er eini virki ræktandi tegundarinnar í augnablikinu á Íslandi.

„Hann var sjöundi hundurinn innfluttur af þessari tegund þannig að hann er tiltölulega lítil tegund, það eru innan við 50 hundar á landinu en þetta er svolítið að stækka og það er að miklu leyti honum að þakka þar sem hann hefur átt mörg got,“ segir Ingunn Birta Ómarsdóttir sýnandi Meikos

Þannig að þetta er hvítur Scheffer?

„Tæknilega já, hann er tengdur þýska Scheffernum en telst núna, sem önnur tegund er alveg sér tegund, sem heitir White Swiss Shepherd en tegundin er oft kölluð hvítur Scheffer. Þetta er alveg æðisleg tegund, ofboðslega vinaleg og gælinn. Þeir eru líka ótrúlega skemmtilegir í hreyfingu, gaman að vera með þeim, þeir eru vinnuglaðir, finnst mjög gaman að vinna með fólki, eru húsbóndahollir og góðir,“ bætir Ingunn Birta við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×