Fyrsta tap Arons og félaga | Kielce lyfti sér upp að hlið Barcelona Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 27. október 2021 18:22 Aron Pálmarsson og félagar í Álaborg þurftu að sætta sig við þriggja marka tap í kvöld. EPA-EFE/RENE SCHUETZE Aron Pálmarsson og félagar hans í danska liðinu Álaborg þurftu að sætta sig við sitt fyrsta tap í Meistaradeildinni á tímabilinu er liðið heimsótti ungverska liðið Pick Szeged í A-riðili, 31-28. Á sama tíma unnu Sigvaldi Björn Guðjónsson og félagar í Vive Kielce nokkuð öruggan fimm marka sigur gegn PSG, 38-33, og er liðið nú á toppi B-riðils ásamt Barcelona.
Heimamenn í Pick Szeged höfðu yfirhöndina frá upphafi leiks og um miðjan fyrri hálfleikinn var staðan orðin 9-5. Aron og félagar náðu ekki að brúa bilið fyrir hálfleik og staðan var 17-13 þegar gengið var til búningsherbergja. Álaborg skoraði fyrstu þrjú mörk seinni hálfleiksins og náði því að minnka muninn niður í eitt mark. Heimamenn náðu þó fljótt góðu forskoti aftur, áður en Aron og félagar minnkuðu muninn á ný. Þeim tókst þó aldrei að jafna leikinn og Ungverjarnir unnu góðan þriggja marka sigur, 31-28. Aron Pálmarsson skoraði tvö mörk fyrir Álaborg sem er enn á toppi A-riðils með átta stig eftir fimm leiki, tveimur stigum meira en Pick Szeged sem situr í fjórða sæti. Svipaða sögu er að segja af leik Kielce og PSG, en eftir jafnar fyrstu mínútur komust heimamenn í Kielce í 9-5 um miðbik fyrri hálfleiks. Liðið hélt forystu sinni fram að hléi, en ataðan var 19-14 er gengið var til búningsherbergja. Sigvaldi og félagar héldu forystu sinni allan seinni hálfleikinn, og sigurinn var í raun aldrei í hættu. Lokatölur urðu 38-33, en Sigvaldi skoraði þrjú mörk fyrir Kielce. Pólsku meistararnir eru nú jafnir Barcelona og Telekom Veszprem í efsta sæti B-riðils með átta stig eftir fimm leiki. PSG er þreumr stigum á eftir þeim í fjórða sæti riðilsins.
Handbolti Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Handbolti Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Fleiri fréttir Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ Sjá meira