Fékk húsnæði á góðum kjörum frá eigendum Svefns og heilsu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. desember 2021 21:00 Jói Fel stefnir nú á opnun nýs veitingastaðar í Listhúsinu sem hann stefnir á að opna fyrir jól. Felino er nýr pítsustaður sem bakarinn Jóhannes Felixson ætlar að opna í Listhúsinu í Laugardal í desember. Eigendur húsnæðisins taka Jóhannesi fagnandi hafa komist að samkomulagi við hann um notkun húsnæðisins sem þó felur ekki í sér leigusamning.
Felino er nýr pítsustaður sem bakarinn Jóhannes Felixson ætlar að opna í Listhúsinu í Laugardal í desember. Eiginkona Jóhannesar er skráður eigandi staðarins og eini stjórnarmaðurinn utan hennar í fyrirtækinu nýja er Björn Leifsson, oftast kenndur við World Class. Jóhannes greindi Vísi frá opnun nýja staðarins í viðtali á mánudaginn. Aðspurður sagðist hann ekki vera einn í rekstrinum en vildi ekki ræða frekar hverjir stæðu að honum með sér. Hann væri í aðalhlutverki þegar kæmi að nýja staðnum. Ljóst er að töluvert fjármagn þarf til að koma nýjum veitingastað á koppinn. Þegar félaginu er flett upp í fyrirtækjaskrá CreditInfo kemur í ljós að félagið Felino ehf. var skráð í lok maí. Kristín Eva Sveinsdóttir, kærasta Jóhannesar og framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar rannsóknarverkefna, er skráður eini eigandi fyrirtækisins og stjórnarmaður. Þá er Björn Leifsson, eigandi World Class ásamt konu sinni Hafdísi Jónsdóttur, skráður varamaður í stjórn. Þar með eru stjórnarmenn upptaldir. Björn og Jóhannes eru góðir vinir og lyfta reglulega saman lóðum í World Class. Björn Leifsson segir aðspurður að staðið hefði til á tímabil að hann kæmi að rekstri pítsasaðar með Jóhannesi. En það hafi ekki orðið af því. Hans aðkoma að staðnum sé því engin. Líklega eigi eftir að uppfæra skráningu stjórnarmanna í fyrirtækjaskrá Credit Info. Veitingastaðurinn verður í Listhúsinu við Engjateig þar sem Gló var áður til húsa. Eigendur húsnæðisins eru Elísabet Traustadóttir og Sigurður Matthíasson, sem reka Svefn og heilsu í sama húsnæði. Elísabet segir í samtali við Vísi að þau hafi útvegað húsnæði undir staðinn. Þannig sé aðkoma þeirra að rekstrinum. Þeirra hagur felist í því að fá starfsemi í húsnæðið sem verði um leið gert fínt og flott. „Þetta verður geggjaður staður og gott að hafa þau í húsinu,“ segir Elísabet og er greinilega spennt. Ekki sé um leigusamning að ræða við Jóhannes heldur samkomulag. Jói Fel rak lengi vel Bakarí Jóa Fel sem finna mátti víða um land. Bakarísreksturinn var lýstur gjaldþrota þann 24. september í fyrra eftir að Lífeyrissjóður verslunarmanna gerði kröfu um það á grundvelli vangoldinna iðgjalda. Bakaríin voru víða á höfuðborgarsæðinu, til að mynda í Holtagörðum, Borgartúni, í JL-húsinu, Smáralind, Spönginni og Garðabæ. Í september í fyrra hafði þeim öllum verið lokað nema í Holtagörðum og Spönginni. Bakaríinu í Borgartúni hafði verið lokað eftir að eigandi húsnæðisins höfðaði útburðarmál vegna vangoldinnar leigu. Svo fór að Bakarameistarinn keypti eignir í þrotabúi Jóa Fel og hóf rekstur eigin bakaría á völdum stöðum.
Veitingastaðir Reykjavík Tengdar fréttir Jói Fel opnar nýjan stað: „Seinni helmingurinn er byrjaður í mínu lífi“ Jóhannes Felixson, bakari, hefur boðað endurkomu sína með nýjum veitingastað í Laugardal. Meira en ár er liðið síðan Jóhannes sagði skilið við veitingageirann, en greinilega ekki fyrir fullt og allt. 29. nóvember 2021 16:46 Starfsmönnum Jóa Fel sem kröfðust þess að kjarasamningum yrði fylgt sagt upp Þrír fyrrverandi starfsmenn Jóa Fel hröktust úr starfi, var annað hvort sagt upp eða sögðu upp, eftir að laun þeirra voru ekki útgreidd samkvæmt kjarasamningum. 22. ágúst 2020 16:50 Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira
Jói Fel opnar nýjan stað: „Seinni helmingurinn er byrjaður í mínu lífi“ Jóhannes Felixson, bakari, hefur boðað endurkomu sína með nýjum veitingastað í Laugardal. Meira en ár er liðið síðan Jóhannes sagði skilið við veitingageirann, en greinilega ekki fyrir fullt og allt. 29. nóvember 2021 16:46
Starfsmönnum Jóa Fel sem kröfðust þess að kjarasamningum yrði fylgt sagt upp Þrír fyrrverandi starfsmenn Jóa Fel hröktust úr starfi, var annað hvort sagt upp eða sögðu upp, eftir að laun þeirra voru ekki útgreidd samkvæmt kjarasamningum. 22. ágúst 2020 16:50