2030 Gunnar Dan Wiium skrifar 3. desember 2021 07:01 Ímyndið ykkur einkavætt afl svo stórt að það í raun sé búið að gleypa allt sem er einhvers virði. Við höfum öll heyrt að 1% jarðarbúa eigi 99% orkunar. Við tökum þessum upplýsingum léttvægilega og segjum bara „svei mér þá, það er aldeilis.” En ef svo er í rauninni þá gerist það ekkert bara fyrir rælni. Fámennur hópur manna sem stendur á bakvið tvö stærstu eignarhaldsfélög jarðarinnar eiga ekki stærsta hlut í öllum stærstu fyrirtækjum heims bara fyrir tilviljun. Og þegar ég segi öllum þá meina ég öllum. Matvæli, hreinsivörur, bankar, tryggingar, lyfja og heilbrigðiskerfi, fréttaveitur, fréttamiðlar, hráefni, tölvur og hugbúnaður, samfélagsmiðlar, eldsneyti, vopn, ferðaþjónusta og ég gæti lengi haldið áfram, allt draslið. Við höfum þessar upplýsingar fyrir framan okkur og við erum bara „svei mér þá.” Er okkur alveg sama svo lengi sem Teslan sé að hlaða í innkeyrslunni og nýjasti Iphóninn helst með óbrotin skjá í vasanum. Er metnaður okkar hvað varðar mennsku og samkennd ekki meiri en svo. Ég er hér til að færa ykkur skilaboð. Skilaboðin eru eftirfarandi: Þessi gígantísku öfl sem liggja á stærstum hluta orku jarðar hafa ekki náð öllu af okkur. Við erum enn í hinum vestræna heimi með sterka millistétt ásamt því að hún hefur einnig verið í veldisvexti í austrinu. Með öðrum orðum, við eigum eitthvað sem svartholið, Golíat, girnist. Við eigum hús og íbúðir, eignir og bankainnistæður, bíla og rétt til kjósa, rétt til að velja til og frá okkar neyslu, rétt til tala upphátt og rétt til að segja nei við lyfjarannsóknum svo dæmi sé tekið. Við sem sagt höfum orku, power, ekki mikið en smá. Markmið Golíats er að sanka að sér öllu, skilja okkur eftir í ánauð, valdlaus með öllu. Við höfum öll sé þessa senu í kvikmyndum og bókmenntum, þetta er í eðli einkavæðingar og rísandi efnishyggju, græðgi, siðleysi, samkenndarskortur og síkósa. Ekkert er bara tilviljunum háð, covid19 er ekki bara út af því, bóluefni og aðskilnaðarstefnan sem er að myndast í kringum það allt er ekki bara af því bara og líður svo bara hjá í tíð og tíma. Þetta er allt hluti af hinu stóra plani, vissri endurræsingu. Enduræsing sem felur í sér hina loka valdeflingu þeirra sem telja sig vera elítuna gegn almúganum. „Þeir segja”, og hverjir eru þeir? Álhattarnir, þeir halda því fram að samkvæmt planinu sé nú verið að skapa fjármálabólu svo stóra að hún muni springa með katóstrófískum afleiðingum. Ríki munu fara í gjaldþrot og verða tekin yfir af Golíat. Álhattarnir segja að nú sé verið að berja liðið, lýðinn til hlýðni og sigta frá þau sem ekki hlýða Víði. Réttur þeirra verði smátt og smátt skertur og hið endanlega takmark sé að standa uppi með einungis meðvitundarlaust afl sem nærist af því sem Golíat dælir í það, einskonar umbun gegn því að þjóna hinum eina flokki, svokallaður uber kommunismi. Álhattarnir segja að planið sé að á næstu átta árum eða svo muni Golíat takast að hirða af okkur allan rétt, allar eigur, allt fjármagn. Þú munt ekkert eiga en þú munt verða hamingjusamur segja þeir samt sem áður. Upptaka af öllu fjármagni mun verða í nafni þess að skapa jafnvægi allra jarðarbúa. Allir munu starfa fyrir kerfið sem er allt í eigu Golíat. Engin miskunn og ekkert rými er fyrir frávik, mótmælendum verður eytt eins og hverjum öðrum vírus. Ef einhver hefur náð svo langt að lesa sig hingað niður segir hann eflaust, „ruglaður hann Gunnar smíðakennari,” eða „nú er hann alveg farin í endanlegt geðrof.” Það má vel vera að svo sé eða að einhverjum finnist það en vitiði hvað, mér er fökk sama hvað ykkur finnst um mig og mín viðhorf. Mér er hinsvegar er ekki fökk sama um framtíð barnsins mín, eða framtíð þeirra tvö hundruð barna ég umgengst í gegn um mína vinnu alla daga. Ég óska þeim sem og öllu mínu samferðafólki farsællar og frjálsrar framtíðar þar sem þau geta lifað í náttúru, samkennd og ást en ekki í aðskilnaði, ánauð og ofbeldi. Svo skilaboðin eru þessi. Ef brotabrot af því sem ég er að segja í þessum pistli er rétt, hvað er þá til bragðs. Ég get ekki sagt ykkur hvað þið eigið að gera en ég get sagt ykkur hvað ég ætla að gera. Ég ætla, til að byrja með ekki að þiggja boð ríkis að vera með í lyfjatilraun í nafni lífheilsu. Ég ætla tala gegn aðskilnaði með boðskap sem snýr að náungakærleik, boðskap sem undirstrikar að við séum í raun aðeins líkami burtséð frá skoðunum, tungu, trú og húðlit. Ég ætla að forðast næringu sem elur af sér sjúkdóma sem krefjast lyfja. Ég ætla að iðka núvitund sem gerir mig tilfinningalega og félagslega sjálfbæran. Ég ætla að alltaf að segja sannleikann þó ég muni mögulega vera fordæmdur fyrir vikið. Ég ætla að biðja alheimsandann um það hugrekki sem þarf til, því núna þurfum við hugrekki. Við þurfum hugrekki til að standa teinrétt frammi fyrir fasisma og valdníðslu, við þurfum hugrekki til að bjóða hinn vangann. Ég elska aðeins eitt og megi mátturinn vera með okkur! Höfundur starfar sem smíðakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Dan Wiium Orkumál Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Skoðun Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar