Weiss fæddist í Sviss, lærði fagið í Genf og flutti til Parísar eftir lok seinni heimsstyrjaldarinnar. Weiss öðlaðist einkum frægð fyrir ljósmyndir hennar af götum Parísarborgar og einn ástsælasti ljósmyndari Frakka í yfir 70 ár.
Þrátt fyrir að hafa verið hætt að taka ljósmyndir tók Weiss virkan þátt í varðveislu ævistarfsins fram á síðasta dag.
Sabine Weiss, fædd árið 1924, byrjaði að taka ljósmyndir við 18 ára aldur og opnaði vinnustofu í París árið 1950. Hún lagði mikla áherslu á að skrásetja daglegt líf í borginni og voru börn gjarnan viðfangsefni hennar.
Síðar ferðaðist hún vítt og breitt um heiminn til að mynda líf íbúa í þorpum jafnt sem borgum. Á sjötta áratug síðustu aldar mátti finna verk Weiss í fjölda alþjóðlegra tímarita, á borð við Newsweek, Time, Life og Esquire. Hún gaf Elysée safninu í Lausanne í Sviss samansafn allra verka sinna árið 2017.