Innlent

Stjórnendur Karolinska heimila Birni að ráðleggja Willum

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Leiða má líkur að því að ráðgjöf Björns muni fyrst og fremst snúa að málefnum Landspítalans en Björn var forstjóri spítalans frá 2010 til 2013 og þykir hafa sýnt undraverðan árangur í stjórnun Karolinska.
Leiða má líkur að því að ráðgjöf Björns muni fyrst og fremst snúa að málefnum Landspítalans en Björn var forstjóri spítalans frá 2010 til 2013 og þykir hafa sýnt undraverðan árangur í stjórnun Karolinska.

Björn Zoëga hefur fengið heimild hjá yfirstjórnendum Karolinska-sjúkrahússins í Svíþjóð til að sinna ráðgjafastörfum fyrir heilbrigðisráðherra Íslands í hjáverkum.

Þetta staðfestir Björn við fréttastofu.

Björn hafði áður sagt við Dagens Nyheter að hann myndi hætta sem ráðgjafi ef hann gæti ekki sinnt starfinu samhliða störfum sínum sem forstjóri Karolinska. Þá var greint frá því að málið væri í skoðun hjá stjórnendum sjúkrahússins.

Greint var frá því á vef Stjórnarráðsins 13. desember síðastliðinn að nýskipaður heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, hefði ráðið Björn til starfa sem ráðgjafa í tímabundið hlutastarf.

Í tilkynningunni sagði að Björn hefði þegar hafið störf og mátti skilja af tilvitnun í ráðherra að ráðgjöf Björns myndi ekki síst varða endurskipulagningu á stjórn og rekstri Landspítala.

„Velferð Landspítalans er og verður ætíð mitt hjartans mál. Það eru fjölmörg tækifæri til að styðja við og styrkja stofnunina og starfsfólkið. Ég er því þakklátur og ánægður að fá tækifæri til að leggja mitt af mörkum og aðstoða nýjan ráðherra í þessu mikilvæga verkefni,“ var haft eftir Birni.

Hann sagði í samtali við Bítið á Bylgjunni að of mikil áhersla hefði verið lögð á vandamál Landspítalans, í stað þess að reyna að leysa málin með „jákvæðum hugsunarhætti“.


Tengdar fréttir

Segir mögulegt að leysa vandamálin með „jákvæðum hugsunarhætti“

„Það eru vonbrigði að hafa staðið í niðurskurði og fá ekki tækifæri til að byggja upp að nýju. Ég var bjartsýnn,“ sagði Björn Zoëga, þáverandi forstjóri Landspítala, í samtali við Vísi í september árið 2013 eftir að hafa tilkynnt að hann hefði sagt starfinu lausu.

Stjórnarandstaðan bindur miklar vonir við Björn Zoega

Þingmenn stjórnarandstöðunnar eru ánægðir með ráðningu Björns Zoega í heilbrigðisráðuneytið og telja ráðninguna merki þess að til standi að breyta um stefnu í heilbrigðismálunum. Tómas Andrés Tómasson, þingmaður Flokks fólksins, hefði reyndar frekar viljað sjá Birgi í Play til ráðgjafar í heilbrigðismálunum. „Sá kann að stýra fyrirtæki," segir Tómas.

Björn Zoëga til liðs við heilbrigðisráðherra

Björn Zoëga, forstjóri Karolinska sjúkrahússins í Svíþjóð, hefur verið ráðinn tímabundið í starf ráðgjafa Willums Þórs Þórssonar, heilbrigðisráðherra. Björn mun sinna ráðgjafastörfum samhliða störfum sínum sem forstjóri Karolinska.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×