Næst mesti fjöldi smitaðra greindist innanlands í gær og á landamærunum hafa aldrei jafnmargir greinst smitaðir.
Þá fjöllum við um mál Erlu Bolladóttur sem vann áfangasigur í morgun í baráttu sinni við að fá mál sitt endurupptekið.
Einnig verður rætt við framkvæmdastjóra á velferðarsviði Reykjavíkurborgar sem hafnar því að heimilislaus maður hafi verið neyddur til að sofa úti í frostinu í nótt eins og fram kom í tilkynningu frá lögreglu í morgun.