Í stað þess að koma heim gæti Hólmar Örn farið í sólina á Kýpur Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 14. janúar 2022 18:01 Hólmar Örn tæklar hér Romelu Lukaku í leik Íslands og Belgíu í Þjóðadeildinni. Vísir/Vilhelm Undanfarnar vikur og mánuði hefur verið talið nær öruggt að fyrrverandi landsliðsmaðurinn Hólmar Örn Eyjólfsson myndi halda heim á leið og jafnvel leika í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu næsta sumar. Nú virðist sem hann gæti verið á leið til Kýpur.
Á knattspyrnuvefnum 433.is er greint frá því að Apollon Limassol, lið sem leikur í efstu deild á Kýpur hafi boðið í miðvörðinn sem er í dag leikmaður Rosenborg í Noregi. Ku það vera til skoðunar. Hinn 31 árs gamli Hólmar Örn hefur komið víða við á atvinnumannaferli sínum. Hann hefur leikið í Englandi, Belgíu, Þýskalandi, Ísrael, Búlgaríu og svo Noregi. Hann lagði landsliðsskóna nýverið á hilluna og talið var að hann myndi koma heim eftir að eiginkona hans, Jóna Vestfjörð Hannesdóttir, hóf störf hjá lögmannsstofunni LOGOS. Nú virðist hins vegar sem Hólmar Örn sé að íhuga að halda atvinnumennskunni áfram og það á töluvert sólríkari stað en Noregi. Apollon Limassol er í 3. sæti úrvalsdeildarinnar á Kýpur þegar tímabilið er hálfnað. Liðið hefur vakið athygli fyrir góðan árangur í Evrópukeppnum á undanförnum árum og er aðeins tveimur stigum á eftir toppliði AEK Larnaca eins og staðan er í dag. Hólmar Örn yrði ekki einu fyrrverandi landsliðsmiðvörður Íslands til að leika á Kýpur en Kári Árnason lék þar árið 2017.
Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti Fleiri fréttir Norska landsliðið flúði hótelið sitt Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Segir að læknir norska landsliðsins sé mjög upptekinn Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Rannsaka kynþáttahatur argentínskra stuðningsmanna Egyptar vilja að dómararnir verði sendir heim Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Sjáðu sigurmark Víkinga og meiðslin sem skyggðu á gleðina Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Hildur til Newcastle Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Segir að það sé verið að dæma í hag Argentínu á HM FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Veikindi herja á norska liðið Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Tuchel bannar Englendingum að stökkva yfir auglýsingaskilti eftir ófarir Henderson Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Í átta liða úrslit í fyrsta sinn í 72 ár Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands