Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hin fræga Króatíu-grýla skýtur upp kollinum og þegar syrti í álinn hjá íslenska liðinu í dag þá rifjaðist ónota tilfinningin upp fyrir mörgum.
Hér að neðan má sjá það helsta sem Twitter hafði að segja um leik dagsins og segja mætti að tístin endurspegli fullkomlega gang leiksins en bjartsýnin var mikil fyrir leik og í hálfleik eftir frábæran fyrri hálfleik hjá íslenska liðinu. Svo vaknaði grýla.
Fyrir leik fékk okkar allra besti Guðjón Guðmundsson, eða einfaldlega Gaupi, þá viðurkenningu sem hann á skilið.
Guðjón Guðmundsson ætti að vera mun meira í sjónvarpinu í kringum þessi stórmót. Pallborðið á Vísi með @gaupinn og co. frábært eins og reyndar öll umfjöllun um EM hér á landi. EM stofan á Rúv lang besta stofan frá upphafi og podköst og annað í kringum mótið líka mjög góð
— Stefán Árnason (@StefanArnason) January 24, 2022
Þjóðsöngurinn fer misvel í mannskapinn.
Sem fyrrum lúðrasveitameðlimur til fjölda ára, á ég alltaf erfitt með að hlusta á þennan hraðspólaða þjóðsöng. Tempóið er í ruglinu! #emruv
— Særún Pálmadóttir (@saerunosk) January 24, 2022
Landsliðsferill Elvars Ásgeirssonar heldur áfram.
Hefur einhver landsliðsmaður fengið aðra eins eldskírn og Elvar Ásgeirsson?
— Andri Ólafsson (@andriolafsson) January 24, 2022
Fyrstu þrír landsleikirnir, Danmörk, Frakkland, Króatía. Á stórmóti. Í milliriðli.
heyrðu þessi elvar kann að þrusa
— Tómas (@tommisteindors) January 24, 2022
Stressið var fljótt að segja til sín.
Búin að stressborða svona hálft kíló af lakkrís fyrstu 5 mín. Mæli ekki með. Hækkaður blóðþrýstingur og skita mun líklega ekki hjálpa í þessum aðstæðum #emruv
— Fanney Birna (@fanneybj) January 24, 2022
Ég akkúrat núna #emruv pic.twitter.com/HpYIQKGP3g
— Ragga (@Ragga0) January 24, 2022
Ég verð orðin taugahrúga áður en þetta fjandans mót klárast #emruv
— Lilja Björg (@LiljaBjorg) January 24, 2022
Eyjamaðurinn Elliði Vignisson vakti athygli snemma leiks.
Er að verða einn harðasti Elliða maður landsins. Andleg ofurhetja.#enruv
— Freyr S.N. (@fs3786) January 24, 2022
Varnarleikurinn vakti almennt athygli.
Að horfa á þessa gutta í handboltalandsliðinu blokka skot í hávörninni og fagna svo eins og þeir hefðu skorað mark (eða þeir spili sem miðverðir hjá ítalska landsliðinu og hafi hent í góða tæklingu), þetta er svo mikil gleði!#emrúv
— Halldór Marteins (@halldorm) January 24, 2022
20 mínútur og 4 mörk skoruð hjá Króötum. Þessi vörn er rosaleg ! #Emruv
— Sveinn Arnarsson (@SveinnArnarsson) January 24, 2022
Sem og Viktor Gísli.
Viktor algjörlega magnaður #emruv
— Snærós Sindradóttir (@SnaerosSindra) January 24, 2022
Hver er þessi Viktor Gísli #emruv
— Ásdís Heiðdal (@DalHei) January 24, 2022
Viktor Gísli er NINJA! #emruv
— Edda Falak (@eddafalak) January 24, 2022
Kostur að kunna tungumál mótherjans.
Þeir ætla að taka júgga úr horninu og svo ætlar cupic að krossa, einhver að skila þessu til Guðmundar #emruv @RanieNro
— Lea Jerman-Plesec (@skemmtiLea) January 24, 2022
Kettir skemmta sér vel yfir handbolta.
Ugla handboltabulla er einn helsti stuðningsköttur strákanna #emruv pic.twitter.com/Xt7xMvIBXz
— Þórunn Ólafsdóttir (@Thorunnolafsd) January 24, 2022
Ísland leiddi með tveimur í hálfleik.
Margt gott en ættum að vera búnir að svæfa þennan leik.
— Rikki G (@RikkiGje) January 24, 2022
HALF-TIME: @HSI_Iceland lead @HRStwitt 12:10 at the break in an intensely-fought match#ehfeuro2022 #watchgamesseemore pic.twitter.com/gedHP0rGTq
— EHF EURO (@EHFEURO) January 24, 2022
Króatar byrjuðu síðari hálfleikinn sterkt.
Nú er Guðmundur að galdra eitthvað magnað með okkar mönnum í klefanum. Núll áhyggjur. Áfram Ísland!
— Birna Anna (@birnaanna) January 24, 2022
Króatía hefur mölvað í mér hjartað oft áður, en ekki í dag. takk
— Freyr S.N. (@fs3786) January 24, 2022
Það er allavega jákvætt að Igor Vori og Ivano Balic eru ekki á leið inná
— Sveinn Arnarsson (@SveinnArnarsson) January 24, 2022
Fæ enn martraðir... #emruv pic.twitter.com/HI4jsF1E5g
Fokk hvað þetta er erfitt. Ógeðslega mikið ströggl. Mætir þeim bara Króata VEGGUR. En aaameeen hvað okkar menn eru ótrúlega góðir í að leysa það! #emruv
— Fanney Birna (@fanneybj) January 24, 2022
Hel-víti í höllinni #emruv
— Sandra Sv. Nielsen (@Kruttusina) January 24, 2022
með tvö börn í sótthví og að horfa á þennan bilað spennandi leik, veit ekki hvort taugarnar þola mikið meir #emruv
— Heiða Björg (@heidabjorg) January 24, 2022
Plötusnúðurinn í höllinni vakti athygli áhorfenda.
Króatinn er að styrkjast á sama tíma og DJ-inn í höllinni nær áttum og hættir að taka einhverja sénsa í lagavali. Þetta er ekki tilviljun.
— Jói Skúli (@joiskuli10) January 24, 2022
Ég þarf að bóka þennan DJ í partý #emrúv
— Steinunn (@SteinunnVigdis) January 24, 2022
Er knattspyrnumaðurinn Óskar Örn Hauksson einnig handboltamaður?
Óskar Cupiz Hauksson? #emruv pic.twitter.com/o7JF2wuyaO
— Magnús Stefánsson (@MagnsStefnsson1) January 24, 2022
Óskar Örn er að taka vítin fyrir Króata. #emruv pic.twitter.com/yajao6hYF7
— Georg Bjarnason (@Georgbjarna) January 24, 2022
Óskar Örn Hauksson er að halda þeim inni í leiknum
— Björn Már Ólafsson (@bjornmaro) January 24, 2022
Tin Lucin átti leiðinlega góðan leik í liði Króatíu.
Good day at the office for Tin Lucin @HRStwitt #ehfeuro2022 #watchgamesseemore pic.twitter.com/rKAdRQnJKi
— EHF EURO (@EHFEURO) January 24, 2022
Lucin að leika okkur grátt. Hvað næst? Njálgurinn? #emrúv
— Brynhildar saga Valkyrju (@BrynhildurYrsa) January 24, 2022
Grýla reis upp frá dauðum í síðari hálfleik.
Vatn er blautt og við eigum ekki break í Króata. #gameOver
— Benedikt Gretarsson (@bennigretars) January 24, 2022
Þessi Króatíugrýla er alvöru tussa. Við gætum spilað á all-time liðinu okkar gegn u-8 ára liði þeirra og það yrði samt háspennuleikur.
— Daníel Smári Magnússon (@danielmagg77) January 24, 2022
Slæmi hálfleikurinn..shiiit #emruv
— Guðmundur Auðun (@GummiAudun) January 24, 2022
Man ekki eftir að hafa séð annað eins meltdown.
— Rikki G (@RikkiGje) January 24, 2022
Daauuuðafærin
— Ragnheiður Júl (@RagnheidurJ) January 24, 2022
Fundum engar lausnir gegn Kóratíu í dag. Vorum lengi að bergðast við sóknarlega og í hlupum á vegg. Auðvitað vantaði mikið í okkar lið en áttum og eigum að gera betur. Nú er það næsti leikur gegn Svartfjallalandi sem verður að vinnast. Úrslitaleikur. Miði er möguleiki.Eina
— Guðjón Guðmundsson (@gaupinn) January 24, 2022
Mér er í alvöru óglatt pic.twitter.com/Scf0FfoQeR
— Gummi Ben (@GummiBen) January 24, 2022
Eitt hras til eða frá skiptir ekki öllu. Fámennið aðeins að leika okkur grátt og það eðlilega. En þessir guttar hafa unnið fyrir því að við eigum samt séns á undanúrslitum. We go again á miðvikudaginn. Treystum bara á smá hjálp frá danska dínamítinu.
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) January 24, 2022
Mér líður eins og ég sé mamma þeirra allra #emruv
— Heiða Björg (@heidabjorg) January 24, 2022