Eftir súrt tap gegn Króatíu í milliriðli og svo enn súrara tap Danmerkur gegn Frakklandi lék Ísland um 5. sæti Evrópumótsins. Mótherjar dagsisn voru Norðmenn og þó engin verðlaun væru í boði var til mikils að vinna.
Sigurvegari dagsins myndi tryggja sér farseðilinn á HM sem fram fer í Svíþjóð og Póllandi á næsta ári. Eftir að staðan var jöfn eftir venjulegan leiktíma fór það svo að Norðmenn unnu með minnsta mögulega mun og því var stemmningin frekar súr á Twitter að leik loknum.
Gaupi bjóst við grímulausri baráttu fyrir leik.
Taka átta í dag á EM. Ísland - Noregur. Úrslitaleikur um sæti á HM á næsta ári. Þetta verður grímulaus barátta hjá báðum liðum. Þetta mót verið frábær skemmtun þar sem okkar menn hafa verið veislustjórar. Búið að vera gott partý. Vonandi getum við skálað í boðinu í kvöld.Eina.
— Guðjón Guðmundsson (@gaupinn) January 28, 2022
Twitter var ekkert yfir sig hrifið af Norðmönnum.
Senda þessa norsara bara aftur heim að éta brunost og kvikklunsj #emruv #handbolti
— Katla, rekaviðarmálaráðherra (@KVTLV1) January 28, 2022
Sko, Noregur gefur okkur aldrei 12 stig í Eurovision, óþarfi að sýna þeim einhverja miskunn #emruv
— Sandra Sv. Nielsen (@Kruttusina) January 28, 2022
Norðmennirnir voru eins og olíuskip að snúa við þarna #emruv
— Eyjólfur Garðarsson (@EyjolfurGardars) January 28, 2022
Þurfa norðmenn eitthvað að vinna? Þau eru nuþegar með oliepenge? Er það ekki nóg?! #emruv
— Vilhelm Neto (@VilhelmNeto) January 28, 2022
Noregur er ömurlegt land #emruv
— Elvar Geir Magnússon (@elvargeir) January 28, 2022
Noregsmaður sendur útaf
— Berglind Ragnars (@BerglindRagg) January 28, 2022
Amma: hahahah gott á hann #emruv
Íslenska liðið sýndi lipra takta á köflum.
Perfect passing by @HSI_Iceland's Janus Dadi Smarason for Bjarki Mar Elisson to equalise #ehfeuro2022 #watchgamesseemore pic.twitter.com/kOodH5fbnG
— EHF EURO (@EHFEURO) January 28, 2022
Ómar Ingi Magnusson (who else?) scores @HSI_Iceland's 2,000th EHF EURO goal #ehfeuro2022 #watchgamesseemore pic.twitter.com/nTSqvW2KMx
— EHF EURO (@EHFEURO) January 28, 2022
Ómar Ingi minnkar muninn í eitt mark 22-23. Hans 56. mark á mótinu og hann er sem stendur markahæsti maður mótsins! pic.twitter.com/IT8kTtImMv
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) January 28, 2022
Reglur í handbolta eru ekki fyrir alla.
Dómarar kalla sjúkraþjálfara inná sem þarf ekkert að gera og fer strax útaf. Ísland missir leikmann útaf í 3 sóknir. Glórulaus regla sem á bara alls ekki alltaf við. #emruv
— Þorkell Magnússon (@thorkellmag) January 28, 2022
Stundum er betra að geyma yfirlýsingarnar.
Ég hefði kannski átt að minnka yfirlýsingarnar þegar ég sótti börnin í leikskólann áðan hérna í Noregi
— Tanja Ísfjörð (@tanjaisfjord) January 28, 2022
Koma svo Ísland!!! #emruv
Ágúst Elí kom inn og vakti athygli.
Jæja þá veit ég að ágústbarnið mitt mun fá nafnið Ágúst Elí #emruv
— Þórunn Jakobs (@torunnjakobs) January 28, 2022
Viktor Gísli og Ágúst Elí eru okkar bestu markmenn í dag. #emruv #handbolti
— Vallisig (@Vallisig) January 28, 2022
Stressið gerði út af við mannskapinn.
Okei eg er grenjandi #emruv
— Lilja Karen (@liljakaren97) January 28, 2022
Er að líða yfir mig úr stressi #emruv
— Unnur (@unnsa_) January 28, 2022
Hvað er verið að gera við geðheilsuna hjá manni, þetta flokkast ekki undir geðorðin 10 #emruv
— Sandra Sv. Nielsen (@Kruttusina) January 28, 2022
#emruv got me like: pic.twitter.com/3A0a7DNeUf
— jesú.com (@annahoj06) January 28, 2022
Ekki í fyrsta sinn á þessu móti réðust úrslitin í blálok leiksins og enn á ný féllu hlutirnir ekki með strákunum okkar.
Norðmenn tryggja sér sigurinn á síðustu sekúndu framlengingar. Svekkjandi tap en frábær endurkoma hjá íslenska liðinu! Vel gert strákar. pic.twitter.com/AUgul07tq6
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) January 28, 2022
— Gummi Ben (@GummiBen) January 28, 2022
Strákarnir okkar, algjörar hetjur
— Glódís Perla Viggósdóttir (@glodisperla) January 28, 2022
Framtíðin er björt og ég er búinn að læra mjög mörg nöfn á nýjum íslenskum hetjum. Takk fyrir mig, strákar!
— Sóli Hólm (@SoliHolm) January 28, 2022
Góðu fréttirnar, ef við töpum, eru að við fáum að hylla strákana í umspili í sumar um sæti á HM. Og, ofan á það fáum við líklega að gera það í Færeyjum því við erum svo miklir kúkalabbar að við eigum ekki leikfæra höll. Þannig utanlandsferð og leikur með þessu liði. I'll take it!
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) January 28, 2022
Svona getur sportið verið grimmt. En það er engin leið að setja almennilega í orð hvað okkar menn mega vera stoltir af þessum tveimur vikum í Ungverjalandi. Áfram gakk því framtíðin er sannarlega björt. #emruv
— Einar Örn Jónsson (@RanieNro) January 28, 2022
Geggjaðir! Það er heiður og forréttindi að sjá íslenskt íþróttafólk trekk í trekk skilja allt eftir og keyra sig gjörsamlega út. Get ekki beðið eftir HM, hef engar áhyggjur af þessu þrotaða umspili. #takkStrákar
— Benedikt Gretarsson (@bennigretars) January 28, 2022
Frábær frammistaða hjá stórkostlegu liði. Þessir leikmmenn þessi þjóð þessi íslenska þjóð. Frammistaðan fer í sögubækur. Niðurstaðan grátleg en þetta lið. Vá.Eina.
— Guðjón Guðmundsson (@gaupinn) January 28, 2022
Elska þetta landslið Takk fyrir okkur #emruv
— Kristjana Arnarsdóttir (@kristjanaarnars) January 28, 2022
Þvílíkur árangur! Að spila erfiðustu leikina með hálft liðið utan vallar og halda haus og klára leiki er ótrúlegt. Hugrekki, skynsemi, sigurvilji og auðmýkt fyrir verkefninu einkenndu mótið. Ungu strákarnir sönnuðu sig og við hljótum öll að hlakka til næstu ára! Takk! #emruv
— Einar Þorsteinsson (@Ethorsteinsson) January 28, 2022
Players who have scored at least 10 goals in 3 games in one @EHFEURO:
— Fabian Koch (@Fabian_Handball) January 28, 2022
1998 - Václav Lan a
2000 - Oleg Velykky
2020 - Sander Sagosen
2022 - Ómar Ingi Magnússon#handball #ehfeuro2022
Handbolti meðan Ísland er á stórmóti: Besta íþrótt ío heimi þar sem hver sekúnda er eins og rússíbani í gegnum allt litróf tilfinninga.
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) January 28, 2022
Handbolti andartakið sem Ísland dettur út: Ég veit ekkert hvaða fólk þetta er eða hvað það er að gera í sjónvarpinu mínu.
6.sætið á EM staðreynd eftir svekkjandi tap í dag. Hrikalega stoltur af liðinu sem lenti í miklu mótlæti en stóð það allt af sér. Við erum rétt að byrja!! pic.twitter.com/3iMtS47Vo8
— Bjarki Már Elísson (@bjarkiel4) January 28, 2022